Afrakstur dagsins

Í dag gerðist það sem ég var búinn að vera að spá í að gera í rúmann mánuð en í dag KLIPPTI ÉG MIG, og ekkert verið neitt að snyrta eitthvað smá heldur var bara rakvélin notuð á þetta og því hárið núna einhverjir 2mm en var þegar ég vaknaði í morgun eitthvað í kringum 20cm á lengdina takk fyrir takk ! En hef annars verið að æfa alveg helvíti fínt þrátt fyrir smá bakslag í hamnum því að ég tók þessa fínu hoppæfingu á mánudaginn, massa lyftingaræfingu í gær og einhvernveginn varð 40mín joggið okkar Jonatans að 1klst og 30mín joggi þar sem við vorum aðeins of mikið uppteknir við að spjalla aðra leiðina og tókum nokkrar vitlausar beygjur þannig að við enduðum uppi í MÖLNDAL þegar við héldum að við værum á leiðinni til baka, þannig að þá var bara eins gott að taka sig til og finna leiðina til baka aftur sem tók nú sinn tíma. En HM kallar þannig að later my friends


3 Athugasemdir
Aug 10, 2005, 16:30
hehe, nei ekki alveg sköllóttur, 2mm eftir ;)

Jú held að ég hafi nú misst allnokkur kíló, á nú ennþá hárin í poka og þarf að vikta það bara, en núna fara íslandsmetin að verða í stóóóórrrii hættu :D
sr
Aug 10, 2005, 16:30
neiiiiiiiiiiii ekki sköllóttur.
ff
Aug 10, 2005, 16:52
Ertu þá ekki nokkrum kílóum léttari og getur hlaupið mun hraðar, nokkur íslandsmet í stórhættu?
Lokað fyrir fleiri athugasemdir


Dagsetning
Aug 10, 2005

Klukkan
15:46

Flokkur
http://www.ragnarfrosti.com/blog/category/

Fjöldi athugasemda: 3

local