Ljósaperukaup, steg 2 av 3

Já það virðist ekki ætla að takast hjá mér að kaupa réttar ljósaperur í ljósið á "ganginum/forstofunni" hjá mér, en það er orðið vel meira en mánuður held ég frá því að ég afrekaði að sprengja báðar perurnar á sama degi. Steg 1. Fyrir cirka 2 vikum þegar ég var í IKEA keypti ég mér perur, venjuleg stærð, 60W en þar sem ég hafði ekki kíkt á perurnar sem ég þurfti að kaupa að þá var þetta að sjálfsögðu kolvitlaust, máttu vera MAX 40W og miklu mun minni. Steg 2. Þannig að í gær þegar ég var í matarleiðangrinum stóra mundi ég eftir helvítis perunum og sá einmitt 40W í réttri stærð og greip með mér, hrikalega glaður í bragði með sýru í örmum klöngraðist ég því uppá stól enn einu sinni, reif perurnar úr og komst að því að perurnar sem ég hafði keypt voru með stórann skrúfgang en áttu að vera með lítinn... Þannig að Steg 3. verður vonandi um næstu helgi og get varla klúðrað þessu þar sem ég veit núna 100% hvernig perur ég þarf að kaupa mér! OG hvernig gat það farið fram hjá mér að sumartíminn byrjaði í dag... Var búinn að plana í morgun að æfa með Jonatan og Therese og vaknaði í morgun við SMS frá Therese þar sem hún spurði hvort ég væri ekki örugglega búinn að stilla klukkuna... Ég nottla alveg nývaknaður hélt bara að hún væri að meina vekjaraklukkuna og senti bara "jújú að sjálfsögðu", settist því fyrir framan tölvuna og ætlaði að reyna að læra smá þegar ég sá að klukkan í tölvunni var 1klst of snemma, Fattaði þá alltíeinu hvað hún hafði verið að meina, reif í mig morgunmatinn og rétt hafði mig á æfingu á "réttum tíma" kl. 11, þannig að ég missti í rauninni af 1klst í dag sem er alveg frekar mikið hálf svekkjandi. En annars fyrir utan þetta nokkuð róleg og fín helgi, unnið xtra mikið í gær, bauð Rakel og Bjössa í mat og fór í Partý heim til Elías í gær og var kominn heim fyrir miðnæti enn einu sinni sem er alveg helvíti kengimagnað.


4 Athugasemdir
Mar 26, 2006, 20:48
Takk fyrir okkur, MEISTARAKOKKUR!
Frosti er jafnvel betri í kjúklingaréttunum en 300m sprettunum getum við sagt ykkur, lesendur góðir!
Fanney
Mar 27, 2006, 15:25
Dísus það lítur út fyrir að það sé bara alveg að rætast úr þér drengur ;) Hlakka ekkert smá mikið til að fá þig til að elda og þrífa upp eftir mig í júlí ;)
Burkni
Mar 27, 2006, 18:37
Hahaha ... þegar þú gefur út æfisöguna þína sýnist mér stefna í heilt bindi bara um ljósaperur og það að taka hakk út úr frysti!
Ragnar Frosti
Mar 27, 2006, 22:51
Bjössi og Rakel: TikkaMasalað var fínt en þarf að þróa Tandoori shittið betur, en hrísgrjónin lúkkuðu amk hrikalega vel [8D]

Fanney: *hóst* *hóst* var það ekki þannig að þú ætlaðir að koma hingað til að elda ofaní mig eða er ég bara alveg að misskilja það??

Burkni: Hakkið og frystirinn hefur reyndar ekki verið vandamál eftir ég keypti örbylgjuofninn en helvítis ljósaperurnar..... hverjum datt í hug að gera svona margar tegundir, ég hefði sætt mig alveg gífurelga vel við bara eina tegund sem myndi virka á allt!
Lokað fyrir fleiri athugasemdir


Dagsetning
Mar 26, 2006

Klukkan
15:28

Flokkur
http://www.ragnarfrosti.com/blog/category/

Fjöldi athugasemda: 4

local