Svona pínu þreyttur

Var eitthvað búinn að minnast á það í gær að ég væri alltaf í stöðuprófum á föstudögum þannig að ég ætlaði að vera alveg voðalega duglegur í gærkvöldi og lesa fyrir prófið í dag og taka það svo áður en ég færi í skólann (10:30) þar sem þetta er allt gert á netinu, lesturinn og prófið. En þar sem ég var bara svo ótrúlega þreyttur eitthvað að þá var ég kominn uppí rúm uppúr 22 leytið algjörlega ólesinn og steinsofnaður stuttu á eftir. Þannig að það var bara rifið sig á fætur uppúr 7 leytið, lesið í gegnum þennann fjanda sem strákarnir sögðu að tæki cirka 1.5klst, + rústaði þessu prófi, allt í allt á 45mínútum og fékk 92% rétt á því (þarf 70% til að ná) þannig að ég hafði meira að segja tíma til að ryksuga og laga til hérna áður en ég fór í skólann, alveg meiriháttar dugnaður það. Svo alveg helvíti skemmtileg æfingin í dag, sama og í síðustu viku, 3x(300m-5mín hvíld-150m) með 15mín hvíld á milli setta. Fékk eitthvað drasl í nárann í hoppunum í gær og fann aðeins fyrir því í upphituninni þannig að ég sleppti bara slatta af hlaupunum í upphituninni og skellti mér bara í góða stöffið með Sandin og byrjaði þetta bara alveg helvíti fínt: 37.2 - 17.2 37.5 - 17.5 En eftir þennann 150m sprett að þá gjörsamlega ákvað líkaminn að gefast upp og kom þessi skemmtilega sýra og ælufýlingur í heimsókn, þannig að ég hékk bara við ruslafötuna alveg fram að síðasta spretti og náði að halda aftur að mér áður en við hlupum síðasta 300m sprettinn á 38.8, leið alveg viðbjóðslega illa fyrir síðasta 150m og rétt hafði mig á línunna, langt frá því að labba beint, komst einhvernveginn af stað eftir 30m og komst þá á fínt skrið en hljóp á mjólkursýruvegg þegar það voru 50m eftir og skreið í mark á 19.2s og fékk þá ruslatunnann loksins að finna fyrir hádegismatnum. En alveg helvíti langt síðann mér hefur liðið svona illa á æfingu, en bara gamann að því :) Fór svo í innfluttningspartý til PJ og Paula í kvöld en var bara svo ógeðslega þreyttur eftir daginn að ég var nú bara kominn heim uppúr 11 leytið og er held ég bara farinn í rúmið núna.... góða nótt


Engin Athugasemd
Lokað fyrir fleiri athugasemdir


Dagsetning
Mar 17, 2006

Klukkan
23:47

Flokkur
http://www.ragnarfrosti.com/blog/category/

Fjöldi athugasemda: 0

local