and one to go

Jæja, eitt próf búið og seinna prófið á morgun og verð að viðurkenna það að Stress hefur aldrei verið neitt vandamál hjá mér í kringum próf áður en núna er þetta hreinlega fáránlegt því að ég er bara hreinlega alltof, alltof, alltof slakur um þessi próf hérna og bara haft nokkuð gamann af því að læra fyrir þau sem hefur bara ekki gerst lengi, eða já, læra fyrir ÞAÐ, þar sem að lærdómurinn fyrir forritunarprófið í morgun var sá minnsti sem ég hef gert fyrir próf, eða cirka 30mínútur...... Í rauninni ekki mikið sem var hægt að læra fyrir það og ætlaði ég bara að taka það eftir æfinguna í gærkvöldi en var bara svo ógeðslega þreyttur að ég var kominn uppí rúm uppúr 10 leytið og sofnaður hálftíma síðar.... Hefði nú ekki verið neitt slæmt að læra aðeins meira, en næ þessu prófi nú alveg, meira að segja að spá í að ef einkunin verður ekki nógu góð að taka þá þetta próf aftur með aðeins meiri lærdómsfyrirvara til að hækka einkunina, en sjáum samt til hvort að það mun einhverntímann gerast... En speaking of sofa.... Djöfulli svaf ég fáránlega í nótt, var gjörsamlega dauðþreyttur í gærkvöldi og því kominn snemma uppí rúm, tók heldur lengi að sofna miðað við hvað ég var þreyttur, glaðvaknaði svo klukkan 01:30 og hélt að það væri kominn morgun, tók smá tíma að sofna aftur og vaknaði svo 4x seinna um nóttina en samt búinn að vera alveg óvenjulega ferskur í dag fyrir utan fáránlega mikla strengi frá baki og í öllum vöðvum lappanna og hefur bara farið versnandi eftir því sem lengra líður á daginn.. En nenni nú ekki að væla um það, er alveg gjörsamlega stútfullur af hugmyndum fyrir nýtt útlit á síðuna mína og með functionir á henni og get ekki beðið eftir því að prófið í fyrramáli verði búið þannig að ég geti byrjað á þessu og tékkað hvort að eitthvað af þessu sé nú mögulegt í framkvæmd, en litagleði og hamingja verða aðalmerki útlitisins :) En hey já, var orðinn frekar loðinn og fallegur í andlitinu eftir tveggja vikna frí frá rakstri og þar sem að ég hafði nú eyðilaggt hársnyrtinn sem er svona mikið mun betra að nota á undann ef skeggið er orðið of langt að þá skellti ég mér út í búð áðann til að kaupa mér ný og fín Mach3 blöð enda ekki annað hægt en að ráðast á runnann með hrikabeitt blöð en í staðinn kom ég bara út með enn eina útgáfuna af Mach3, eða Power Nitro or some sem á að vera alveg voðalega gott og betra en allt annað, með batteríi og öllum græjum sem svinvirkaði bara svona á lubbann, alveg helvíti sáttur með það og því kominn með Prófskegg þessarar annar, trukkarann sem á ábyggilega eftir að vekja jafn mikla lukku og hann gerði síðast :)


Engin Athugasemd
Lokað fyrir fleiri athugasemdir


Dagsetning
Mar 09, 2006

Klukkan
00:36

Flokkur
http://www.ragnarfrosti.com/blog/category/

Fjöldi athugasemda: 0

local