Allt komið í gang

Jæja, eftir miklar vangaveltur, breytingar, simtöl og hjálp frá Ara og meira til að þá er síðan komin aftur í fullt gang, commentin farin að virka og vonandi allt í lagi, endilega láta mig vita ef það er eitthvað eins og það á ekki að vera. En lítur sumsé út fyrir að serverinn hafi verið hakkaður eða einhvern djöfullinn þannig að málið að reyna að verja hann betur og búinn að setja hann betur upp núna þannig að það ætti amk að vera erfiðara að hakka inn á hann núna (eða það vona ég amk) En já, tók sumsé 3x300m æfinguna í gær og átti þetta að vera á cirka 400m tempói og frjáls hvíld á milli. Fyrsti var nákvæmlega eins og fyrstu 300m í Malmö hlaupinu um daginn, lélegt frá A-Ö, alltof stressað hlaupið með lélegum skrefum, 22.8 í gegnum 200m og hreyfðist varla síðustu 100m, tíminn 35.9 og vel þreyttur og súr eftir það. Ákvað að taka ekki meira en 20mínútna hvíld á milli og annar mun betur hlaupinn, fyrstu 200m á 23.1 og tíminn 36.1 á 300m en samt of þreyttur síðustu 50m. hvíldi aftur í 20mín og hljóp þá síðasta sem var í rauninni alveg fullkominn, rosalega afstressað og fínt, nákvæmlega engin áreynsla, fyrstu 200m á cirka 23.5 og 300m tíminn á 36.1 og engin sýra né þreyta eftir hann, hélt fyrst að þetta hefði verið alltof hægt þar sem þetta var svo rosalega létt, þannig að spurning að finna þetta bara á mótinu um næstu helgi þar sem 200m og 400m eru á dagskrá, 200m fyrst og 400m tæpum 2klst síðar þannig að nægur tími til að hvíla sig þar á milli. En á leiðinni heim lenti ég í því í amk annað sinn frá því að ég flutti hingað að ég sat í sporvagninum á spjalli á sænsku þegar einhver róni sem sat fyrir aftan mig bankar í mig og segir "Þú ert frá Íslandi er það ekki??" (á sænsku þeas) og ég var bara alveg wtf er í gangi hérna..... doltið spúkí sko!! En dagurinn í dag fór annars bara í lærdóm með Groten sem kíkti í heimsókn hingað og éta hamborgara A'la Ragnar, Groten alltaf jafn himinnlifandi að fá svona veislu hjá mér. En spurning að koma sér í klst vinnu í forritunarprojektinu þar sem síðan er aftur komin í gang og SOFA ÚT Á MORGUN, algjörlega þörf á því núna eftir þetta serveravjézen!!!


7 Athugasemdir
Ari
Feb 12, 2006, 18:14
Hakkabuff. Hey þetta virkar aftur!
Feb 13, 2006, 04:43
Hvað er þetta býðuru bara Groten í mat... ég veit ekki betur en að þú skuldir mér ennþá matarboð. !?! [8D]... og reyndar nudd líka ef út í það er farið [:Þ] [:D]
Arndís María..
Feb 13, 2006, 18:13
það er nú gaman að segja frá því að ég held að ég hafi bara verið boðin i þitt fyrsta matarboð......lambalæri og brúnaðar kartöflur [:)]
Ragnar Frosti
Feb 13, 2006, 22:56
Krissa: Getur nú bara sjálfri þér um kennt að flýja land þegar maður ákveður að ráðast í þessa fínu hamborgaragerð [8D]

Arndís: Jú það passar, náttúrlega ekkert ráðist á vegginn þar sem hann er lægstur í sínu fyrsta matarboði, og þrátt fyrir þurrar brúnaðar kartöflur og hnausaþykka sósu að þá bragðaðist þetta nú bara alveg með ágætum, eða var þaggi annars???
Feb 13, 2006, 23:50
HEY!!! ég fékk engar upplýsingar um að þú ætlaðir að búa til hamborgara!!!!
Arndis María
Feb 14, 2006, 05:08
eg man ekki betur en að þetta hafi bragðasat mjög vel.....þrátt fyrir skemmtlegar aðfarir við að ná hnausþykku sósunni úr skáinni [:D]
Ragnar Frosti
Feb 16, 2006, 00:03
Enda meistarakokkur að stíga fram í sviðsljósið [:Þ]
Lokað fyrir fleiri athugasemdir


Dagsetning
Feb 12, 2006

Klukkan
03:13

Flokkur
http://www.ragnarfrosti.com/blog/category/

Fjöldi athugasemda: 7

local