Mér finnst rigningin svo góð.....

.... á heitum sumardegi í blanka logni og svona 30°C en ekki þegar það er nýbúið að snjóa!! En í gær og í nótt snjóaði alveg svona þokkalega (amk miðað við að vera í Gautaborg) og því allt voðalega hvítt og fallegt þegar ég vaknaði í morgun og var það ótrúlega heimskur að fara bara í lágum skóm í skólann því að eins og alltaf gerist í þessari blessuðu borg þegar það snjóar að þá er stutt í rigninguna og mígringdi í morgun og búið að vera svona við og við í dag þannig að ég er basicly búinn að vera blautur á tánum frá því klukkan 9 í morgun og þangað til ég kom heim fyrir stuttu, sem er ekki alveg það ferskasta í heiminum get ég sagt ykkur, sé voðalega eftir því að hafa ekki keypt mér vöðlurnar sem ég var að spá í að kaupa mér í gamla daga þegar ég stóð í stígvélum í mittisdjúpum sjónum í fjörunni heima að gera heiðarlega tilraun til að veiða fisk. Afrekaði svo í dag, annað skiptið á einni viku að gleyma símanum mínum heima þegar ég fór í skólann. Og alveg ótrúlega er maður háður þessu kvikindi, manni leið bara illa, þurfti að hringja í einhvern og bara neeeiiii, þú getur það ekki, ÞÚ ERT SÍMALAUS, já símar eru frá djöflinum held ég, en samt langar mig nú í nýjann síma og kröfurnar eru 1stk núll takki og velvirkur hátalari, ekki meiri kröfur á mér í augnablikinu, en skemmir að sjálfsögðu ekki að hann geti tekið súpergóðar myndir og spilað MP3 :)


Engin Athugasemd
Lokað fyrir fleiri athugasemdir


Dagsetning
Feb 06, 2006

Klukkan
19:55

Flokkur
http://www.ragnarfrosti.com/blog/category/

Fjöldi athugasemda: 0

local