På väg söderut

Jæja jæja jæja, sit núna bara hérna á chillinu að bíða eftir farinu suður en fer þangað á eftir og verð til föstudagskvölds (eða seinna ef öll för klikka) en ætla að ná að hlaupa eitthvað í kvöld og morgun og keppa á föstudaginn, alveg gríðarleg stemning í því. En kíkti á annan jóla djammið hérna í bænum í fyrradag, sem var jú, annar í jólum og bara, jaahhh, jú skemmti mér alveg konunglega í förfestinni þegar maður var að hitta alla en svo var djammið á barnum bara svona ekki mikið meira en lala þar sem mér fannst bara vera alveg alltof mikið fólk þarna og djammfílingurinn bara ekki alveg til staðar, sussumsvei hvað maður er að verða gamall, líka búinn að ákveða að vera bara þokkalega rólegur um áramótin, chilla bara heima hjá mömmu og pabba fram yfir miðnæti í fyrsta skiptið í allmörg ár og kíkja svo bara kanski á ball eftir það, bara ekki alveg búinn að negla neitt niður. En fer svo aftur heim til Gautaborgar eftir 6 daga... vá hvað þetta er fljótt að líða, hef ætlað að gera svo margt en komið mér í rauninni í lítið vegna þess að ég hef verið svo upptekinn við að gera lítið, mjög merkilegt allt samann, en var alveg helvíti fín stemning hérna í gærkvöldi þar sem að Arnar Már og Ari kíktu að norðann hingað, Arndís bakaði súkkulaðiköku og heitann rétt og svo kíktu S.Arnar, Katý og Anna Beta og spiluðum við Partý & Co og Viltu vinna milljón, niðurstaða kvöldsins: PANT VERA ALLTAF MEÐ ARNARI MÁ!!! en það er gjörsamlega ómögulegt að vinna þennann dreng ef leikirnir tengjast spurningum. Keppti svo líka í gær á innanhúsmóti UMSS í hvorki meira né minna en langstökki án atrennu, hástökki og kúluvarpi. Langstökkið rétt bjargaðist fyrir horn í lokinn þegar ég drullaðist rétt yfir 2.90 og stökk 2.92 en alveg skammarlegt ef það er styttra en það, hástökksgetan lækkar svo alltaf niður um 5cm á hverju ári og endaði ég með 1.65 sem er að sjálfsögðu skammarlegt fyrir mann sem á 1.85 en átti ég reyndar alveg salinn sem fær góðar þakkir fyrir stuðninginn þegar maður þurfti á að halda ;) Já og kúluvarpið.... come on, ER ÉG KÚLUVARPSLEGUR, en kastaði 8.61 sem er alveg 40cm styttra en ég á, en fæ góðann plús fyrir gríðarlega fallegann stíl auk öskrisins sem ég notaði í síðasta kastið, fór reyndar svo mikil orka og einbeiting í öskrið að kastið var örstutt og ég flaug á hausinn :) En vonum að 400m hlaupið á föstudaginn verið jákvæðara en þessar greinar :)


2 Athugasemdir
Dec 28, 2005, 19:14
vá hvað ég hefði verið til í að sjá þig í kúluvarpi, með fullri virðingu fyrir þér, en ég hefði pottþét drepist úr hlátri!!! haha.. æi vá.. annars bara.. gangi þér vel í 400;)
Ragnar Frosti
Dec 31, 2005, 14:57
Mig hefði nú bara líka langað rosalega mikið að sjá mig í kúlu, allaveganna skemmtu allir aðrir sér voðalega mikið að horfa á mig reyna að athafna mig þarna [8D]
Lokað fyrir fleiri athugasemdir


Dagsetning
Dec 28, 2005

Klukkan
11:35

Flokkur
http://www.ragnarfrosti.com/blog/category/

Fjöldi athugasemda: 2

local