Honkí kónk

Kíkti norður á Akureyri í gær á æfingu og svo á King Kong í bíó, alveg rúmlega 3ja tíma mynd þannig að maður var á ferðinni svona frekar seint heim í gærkvöldi, en alveg hin fínasta mynd sko, gamann að því að bæta við risaeðlum og fleiri snilldardýraandskotum. En svo já, haldiðið að strákurinn sé ekki bara búinn að kaupa allar nema eina jólagjöf OG ENNÞÁ 2 DAGAR TIL JÓLA!!!! en varð að sjálfsögðu að skilja eftir eina fyrir þorláksmessukvöld enda engin jól ef maður breytir því útaf vananum. En annars bara róleg vika í æfingunum enda átti þetta að vera róleg vika, tekið vel á því í næstu og ætla að kíkja suður í cirka 2 daga og ná að hlaupa almennilega í höllinni þar og aldrei að vita nema maður keppi á mótinu 27:nda eða 30:sta bara spurning hvort ég ætli að hlaupa 200 eða 400m bara hreinlega ekki búinn að ákveða mig en bara alveg dauðlangar að prufa og hlaupa í nýju höllinni og svo eiginlega líka búinn að ákveða að koma hingað heim fyrir MÍ innanhús og keppa þá helgina, svona eiginlega búinn að negla það niður. En líka búið að vera nóg að gera hér heima bara, setja upp netið fyrir allt húsið, bæði þráðlausadæmið og annað, núna 3 tölvur í gangi í húsinu og spá þessvegna líka bara í að setja serverinn í gang aftur, þá núna með Linux og aldrei að vita ef vel tekst að ég hendi síðunni minni þangað inn aftur :)


Engin Athugasemd
Lokað fyrir fleiri athugasemdir


Dagsetning
Dec 22, 2005

Klukkan
21:03

Flokkur
http://www.ragnarfrosti.com/blog/category/

Fjöldi athugasemda: 0

local