Relaxi taxi dagur

Bað Palmas þjálfara mjög kurteisilslega í gær um frí frá æfingu í dag eftir hálfa æfinguna í gær, bara hreinlega ekki að fíla mig ferskann fyrr um daginn og batnaði ekki með hlaupunum þannig að áttaði mig hreinlega á því að ég ég ætti að ná að meika þessa æfingaviku að þá yrði ég hreinlega að taka einn auka frídag og fínt bara að gera það í dag í staðinn fyrir langhlauparaæfinguna, svo rólegt á morgun og geta tekið almennilega lyftingaræfingu á fimmtudaginn og svo sprettina á föstudaginn. En æfingin í gær var bara alls ekki uppá marga fiska, helmingurinn illa hlaupinn og restin bara ágætlega, fyrri 150m eini á tíma og það 17.3 þannig að hraðinn ekki mikill þann daginn. En núna er svo síðasta vikan í skólanum og því lítið annað gert en lært núna, eina sem sjónvarpsefnið sem er með grænt ljós í augnablikinu er 24 auk Simpson/Family Guy á með ann maður er að éta, verst bara hvað það er nú helvíti leiðinlegt að sitja einn heima og læra í eigi skemmtilegri stærðfræði... Sumsé próf á mánudaginn eftir viku + fimmtudaginn og svo uppáhaldið mitt, Laugardagseftirmiddags próf, jííííí En þetta þýðir þá nottla bara það að það eru einungis 1.5 vika í að maður stígur fæti á klakann, shitt hvað tíminn líður hratt!!


4 Athugasemdir
Arndis María
Dec 06, 2005, 18:14
Kannski ættir þu að vera að vinna í jólakorta málum á meðan þú borðar í staðinn fyrir að horfa á sjónvarpið [8D]
Hvernig ætli gangi annars með jólakortið sem Ari lofaði okkur....ÚFLURINN 2...!!??!!
Ragnar Frosti
Dec 06, 2005, 19:51
Metnaður minn í jólakortunum er nú meiri en svo að hafa matarleifar og slettur á jólakortunum [;)]
En spenningurinn er alveg gífurlegur eftir jólakortinu frá Ara, Úlfurinn 1 var náttúrlega bara það fyndnasta sem komið hefur út á geisladisk þannig að væntingarnar eru alveg gífurlegar fyrir Úlfinn 2 (Pressa Ari, PRESSA!!!!) [;)] [:D]
Arndis Maria
Dec 06, 2005, 22:38
eg fann úlfa diskinn minn aftur um daginn...og alveg snilld...Rauðhetta ómaði í bílnum í eina viku [:D]
Ari
Dec 07, 2005, 11:04
Shit! [:|]
Lokað fyrir fleiri athugasemdir


Dagsetning
Dec 06, 2005

Klukkan
19:57

Flokkur
http://www.ragnarfrosti.com/blog/category/

Fjöldi athugasemda: 4

local