*Sniff* *Sniff*

Hvaða lykt er þetta?? *sniff* *sniff* jú, eins og ég hélt, mér sýnist vera einhver vantrú á mér í loftinu... *sniff* jú þetta er defenitly vantrú, en er ekki alveg að skilja þessa vantrú á mér, HALLÓ FÓLK, ÞETTA ER ÉG!!! En miðað við commentin að þá er þetta bara orðin hin fínasta áskorun á mig að gera þetta vel og vandað enda mikið í húfi, stoltið, jahhh, sem fer reyndar við það eitt að setjast við saumavélina óháð hvernig þetta fer, en hinsvegar aðalmálið er efnið, ég MÁ NEFNILEGA EKKI GERA MISTÖK, því að ég reiknaði að sjálfsögðu ekki með neinum mistökum þegar ég keypti efnið, þannig að mistök þýðir löng ferð í IKEA sem er að sjálfsögðu stórhættulegt vegna áður umtalaðra ódýrra smáhluta, en meira um gardínur síðar, eða þegar þær verða tilbúnar... En fagnaði jákvæðum niðurstöðum með haminn í gær með fyrstu gaddaskóaæfingu vetrarins sem gekk bara svona ljómandi og svo síðustu æfinguna með langhlaupurunum í dag og var kveðjugjöfin 10x2mín með 1mín hvíld á milli sem gekk bara svona þokkalega vel, gat haldið í fremstu menn í öllum sprettunum en orkaði alls ekki að taka með þeim 2 í viðbót eins og þeir gerðu, var hreinlega alltof búinn eftir þetta. Á sunnudaginn var svo einnig síðasta brekkusprettaæfingin mín sem ég fagnaði alveg ákaft enda ekkert alveg sú skemmtilegasta og tekur núna við róleg vika, létt återhämtning á morgun og frí á fimmtudag-laugardags, ný æfingaperiod svo á sunnudaginn, jibbýýýý.... Helvíti, svona miðað við það hvað það er fínt að redda sér svona með tilbúnum keyptum, frystum mat, þegar maður kemur svona ógurlega þreyttur heim af æfingu, nema hvað að 13ára anorexíusjúklingur yrði samt ennþá svangur eftir einn svona skammt, var núna frekar mikið svangur þegar ég kom heim, fékk mér svona Svínasnitzel, með frönskum, sósu og grænum baunum, var að klára núna og bara svona, jaaaahhh, kominn með epli í hendina og virkilega mikið að spá í að rista mér brauð enda algjörlega ómöguegt að fara að sofa svangur, maður liggur uppí rúmi og pælir svo mikið í því hve svangur maður sé að maður verður ennþá svangari og fallegi ómur James Blunt fer að hljóma eins og ástaróður til hamborgara, nei, það er frá helvíti að vera svangur... En talandi um ljós, djöfulli er mig farið að langa núna í ljós, áttum okkur á því að ég hef ekki farið í ljós núna í 2 ár, og margir bara, "só, ég hef ekki heldur farið í ljós í 2 ár" en cut the crap og hættum að tala um þig og tölum aðeins um mig, því að í sumar var alveg dúndurgóður endir á mái, júnímánuður og fyrrihluti júlímánaðar hér í Svíþjóð, í lok maí var ég í prófum á meðan æfingafélagar mínir fóru til spánar og komu heim svoldið mikið brún, eftir það fékk ég þá gáfulegu hugmynd að fara til Íslands í 3 vikur í júní, á meðann það voru 25-30°C hér í gbg að þá var ég heima á krók í 3-8°C og fékk sól í einn dag, og hey við erum að tala um mig hérna, gamli góði brúni og sæti Ragnar... er bara sætur núna, hvað er málið með það!!! En sá annars í gær myndbandið við Goodbye My Lover með James Blunt á ZTV, eða seinni partinn af því, og ég er ekki frá því að hún Mischa Burton (Marissa) úr OC hafi bara leikið í því, erum við að tala um að gera mér til geðs eða??? Besta lag í heimi með leikara úr bestu þáttum í heimi (eða svona, jú got the point), en amk.. mí happý :) En nóg af rugli, kaffið tilbúið og forritunin kallar....


2 Athugasemdir
Burkni
Nov 23, 2005, 14:08
Gamall: já
Góður: mjaa
Sætur: *hóst*
Brúnn: ja, þar eru örlögin í þínum höndum [8D]
Ragnar Frosti
Nov 24, 2005, 08:04
hehehe, þakka þér Burkni minn, alltaf hægt að treysta þér til að rífa sjálfstraustið upp í manni [;)]
Lokað fyrir fleiri athugasemdir


Dagsetning
Nov 22, 2005

Klukkan
21:20

Flokkur
http://www.ragnarfrosti.com/blog/category/

Fjöldi athugasemda: 2

local