clicktoforyou.com
Nov 25, 2007, 11:13

 Jæja jæja, búinn að vera fá smá undanfarið frá fólki á MSN-listanum mínum skilaboð með linknum : http://www.clickforyou.com þar sem maður á víst að geta séð hverjir hafa blockað mann á MSN-inu.

FÓLK, ekki klicka á þennann link og alls alls ekki senda inn notendanafnið og passwordið ykkar þangað, afhverju, jú þetta er mjög líklega vírus og regla nr. 1. 2 og 3 á netinu er að ALDREI nokkurntímann gefa notendanöfnin og passwordin ykkar til þriðja aðila.

Þannig að ef þið hafið notað þetta, vinsamlegast farið inn á hotmail login svæðið ykkar og breytið lykilorðinu ASAP !!

las þetta hérna eihverstaðar:

its malware,collects information stored in the computer or logs keystrokes then sends the information back to whoever wrote the program.you dont need to share your passwords it just steals them.

Auk þess sem þetta notar hotmail accountinn ykkar til að dreyfa ruslpósti til allra á póstlistanum/MSNlistanum ykkar !

Þetta er sama með öll E-mail sem maður fær, aldrei opna neitt sem maður kannast ekki við og guð minn góður aldrei gefa neinum lykilorðin ykkar!

Ef allir fara eftir þessu að þá hætti ég að fá svona mikið rusl sent frá ykkur á MSN-inu :)

Kominn online og smá viðbætur
Nov 23, 2007, 11:45

 Jæja, lenti í smá vjézeni í morgun þegar database-inn fór fjandans til en náði sem betur fer að kippa því í liðinn aftur núna ásamt að setja inn smá nýtt.

Hægra meginn er kominn smá spilari þar sem ég skelli inn því sem maður er að hlusta á mest þá stundina þannig að fólk getur alveg drullað yfir tónlistarsmekkinn minn, ástamt því að hafa þar lög sem ég bara get ekki fengið leið á, sama hve mikið ég hlusta á þau...

Svo henti er myndaalbúmið líka komið í gang aftur, engar nýjar myndir þar (ekki búinn að setja einu sinni upp þannig að ég geti sett inn nýjar myndir, en það hlýtur að koma fljótlega), þannig að núna ætti held ég bara allt að virka á síðunni sem á að virka.

Er reyndar ennþá að breyta útlitinu á valröndinni hérna hægra meginn, get bara lífs ómöglega verið sáttur eða ákveðið mig hvernig hún á að líta út, but but, verður svona næstu dagana amk.

Þannig að.. já... læra kanski ?

Skilaverkefni og Leopard
Nov 11, 2007, 22:19

Djísus, planið um helgina var að vera alveg voðaduglegur að læra, klára eitt skilaverkefni fyrir morgundaginn og lesa svo yfir glósur og nokkra kafla í þessum áföngum sem maður er að lesa.

Varð ekki alveg svo gott því miður þar sem að þetta blessaða skilaverkefni í Cryptography tók alla helgina og rétt náði að klára það áðann og náði því ekkert að læra í hinu dótinu eins og planað var, skilaverkefnið var basicly bara: Hvað stendur hérna:

ZOZNK NRTRN NASGK NOSXG RORFJ OCVOE
RJSFS OHFSE WSKJG EVONS FNVZJ CROCR
GRMSG JNSAW SKGJR ORMOZ BRCVB RGRVM
CRJKN CRGRV FJWSK MSKTJ FSOMR TRIGV
ORCZD EZOCS KOIRZ FUHFS EFWSK GNRTA
ECRFD SGOZD RGOST JDRWS KGFVD RCRMS
KTJFS OJRFW WSKGZ JRFOZ OWZAW SKVGR
CRGRO CRFZO ASTTS ENOCV ODGNC RGTSM
HCSTD RNZNZ FORGR NOZFU CZDNR TAZFO
CRDVO ORG

Alveg ótrúlegt ef maður hefur einhverja ákveðna hugmynd hvað maður getur fastnað alveg í henni og verið algjörlega blindur á allar aðrar lausnir !

En annars jákvætt við helgina, ÉG ER KOMINN MEÐ LEOPARD Í TÖLVUNA :) loxins loxins loxins

local