Samsung Galan
Jan 29, 2008, 20:47

Átti frímiða á Samsung Galan í frjálsum sem var að enda hérna í Gautaborginni rétt áðann en ákvað að læra heima í staðinn og fara á æfingu á meðann mótið var, sé svona pínu lítið eftir því núna, jújú voru nottla margar stjörnurnar að keppa þarna en held að það hefði verið lang skemmtielgast að horfa á 60m grindahlaup kvenna þar sem Susanna Kallur er náttúrlega bara að fara á kostum og bætti sænska metið um 5/100s þegar hún hljóp á 7.75s sem er einungis 6/100s frá heimsmetinu í greininni.... Stelpan náttúrlega bara í suddalegu formi.

Eins hefði verið gamann að horfa á Lenu, æfingafélaga minn í grindinni líka þar sem hún bætti sig líka svona fínt, 8.33s (úr 8.45 sem hún hljóp á um síðustu helgi) og er núna sumsé 13/100s frá HM lágmarkinu og 2/100s frá því í 60m, vill endilega fá að sjá hana komast þangað !

En í staðinn var ég bara í rólegheitunum á æfingu að lyfta og hoppa og gekk bara alveg drulluvel, náði meira að segja að bæta mig í hoppum yfir grindur þegar hækkaði þá síðustu í 1.42m og var alveg drullunálægt 1.45m, tek það seinna í vikunni !

Fínasta byrjun bara
Jan 27, 2008, 21:05

Jæja, hið fyrsta mót innanhústímabilsins var núna hjá mér um helgina og gekk bara alveg ljómandi vel miðað við fyrsta mót, bæting bæði í 200m og 400m, 22.73 (átti 23.10) og 4sæti og svo 49.66 (átti 50.04) og 3ja sæti þannig að þetta var bara alveg ágætt.

Byrjaði á að hlaupa 400m á laugardeginum þar sem tæknilega séð var þetta sennilega mitt besta 400m hlaup en opnaði bara fyrstu 200m of hægt, 23.61 (rafmagnstími), held ég eigi nú eitthvað ágætis inni þar sem ég næ vonandi út á næstu mótum.
Hljóp í næstbesta riðlinum og leiddi hann frá fyrsta skrefi til síðasta án nokkurrar sérstakrar keppni, næsti maður kom í mark á rétt rúmum 50s.

200m hljóp ég svo í dag og var í rauninni mjög spes, fyrir það fyrsta var allt í rugli í nafnakallinu sem átti að vera 15mín fyrir hlaup, varð alveg voðaleg seinkun á því útaf einhverjum tæknivandamálum og svo voru allir riðlarnir í rugli, endaði á að við vorum bara tveir sem hlupum í mínum riðli.
Fékk krampa í utanvert hægra lærið rétt fyrir ofan hné þannig að ég gat ekki hitað almennilega upp, fékk nudd á það og drakk einhverja lítra af vatni og ákvað bara að testa að negla á hlaupið sem gekk svona og svona. Byrjaði á því að rykkja smá í startinu og hefði átt að fá dæmt á mig þjófstart fyrir það en fékk ekki þannig að þegar ræsirinn loxins skaut að þá var ég ekki í neinu jafnvægi og því fyrstu skrefin úr blokkinni alveg lala, hljóp fínt á beinu köflunum en beygjurnar voru alveg hundlélegar þar sem að ég var orðinn svo sveittur á fótunum og þar sem ég hleyp ekki í sokkum að þá rann ég alveg voðalega til eitthvað inní skónum og gat því hálfpartinn ekki keyrt almennilega í beygjunum, þanni að í rauninni bara mjög sáttur með tímann svona miðað við fílinginn í þessu blessaða hlaupi, ætti að eiga nóg inni þarna!

Skelli vonandi inn vídjói af báðum hlaupunum núna á næstu dögum, og svo spurning hvort það verði 60m hérna í Gautaborginni um næstu helgi eða 400m í Stokkhólmi... en núna, sofa !

Umbrella
Jan 07, 2008, 19:35

Finnst alveg mjög svo skemmtileg útgáfan af laginu, sem Rihanna gerði svo frægt hér um árið, Umbrella með sænsku rockhljómsveitinni LillaSystir, þannig að ég ákvað bara að skella því í spilarann hér á hægri hönd, mæli alveg með að fólk tékki á því :)

En átti annars alveg mjög fína æfingu áðann, 4x150m með þessum fínu 10mínútum á milli, tímarnir 16.3 - 16.2 - 16.3 - 16.4, ætlaði mér aðeins of mikið í þessum síðasta og náði alveg spenna hvern einasta vöðva líkamans í 150m í staðinn fyrir að hlaupa þetta eylítið afslappað og varð því hægastur, en ætlaði að reyna að ná honum niður á 16.0, en gamann að þessu þar sem ég hef ekki hlaupið hraðar en 16.2 í 150m inni áður þannig að þetta ætti alltsamann að finnast þarna einhverstaðar.

Annars ákveðið að ég keppi ekki um helgina. Þar sem ég hljóp ekki það mikið á íslandinu yfir jólin... Tek í staðinn smá test á fimmtudaginn, 150m og 450m :) og svo einhverja almennilega 400m æfingu á laugardeginum, keppnistímabilið byrjar svo í staðinn um næstu helgi í Borås þar sem ég hleyp 400m.

Og smá mont í lokinn..... djöfulli sem íbúðin mín er hrikalega flott núna, eiginlega að spá í að banna mér sjálfum að búa hérna næstu vikurnar svo ég eyðileggi þetta nú ekki alveg svona strax. Ótrúlegur munur að vera kominn með aðeins fleiri myndir uppá veggina og breyta röðuninni á öllu í eldhúsinu þannig að þetta lítur bara alveg mjög svo fínt út þó ég segi sjálfur frá. Kanski bara næst á dagskrá að kíkja í Ikea á næstunni og breyta aðeins til í stofunni :)

Free counter and web stats
local