Sumarið er tíminn...
May 31, 2008, 06:45

Djöfulli sem það er gott að vera kominn í frí frá skólanum, hálf óvenjulegt í rauninni að geta bara setið heima, slappað af og ekki þurft að pæla í hvernig maður leysir öll þessi hópverkefni eins og hver mínúta hefur verið síðustu mánuðina.

En orðum þetta svona... Ég rústaði amk prófinu í gær !

Og svo yfir í góðu fréttirnar, gat hlaupið á 400m keppnishraða á æfingunni á fimmtudaginn þannig að hamurinn heldur = byrja að keppa núna á þriðjudaginn í Malmö, föstudaginn í Stockholm og mögulega skokka 200m á sunnudeginum hérna í Gautaborginni.

Gífurleg gleði og hamingja þetta allt samann, ekki skemmir heldur þetta veður sem er búið að vera hérna og á að vera hérna áfram, rúmlega 20°C og gæti farið uppí 30°C á morgun, sól og sæmilegt logn = drauma æfingaveður.

En farinn að taka mig til fyrir lyftingaræfingu dagsins !

Fyrsta mótið... smá seinkun
May 27, 2008, 19:17

Djöf, verð að fresta eitthvað aðeins fyrsta mótinu á tímabilinu. Reyndi sumsé að hlaupa í gær en hamurinn leyfði mér ekki ennþá að komast uppá 100% hraða og því engin tilgangur í að reyna það á mótinu á morgun.

En mér til mikillar gleði að þá er ég skráður í FGP mótið í Malmö á þriðjudaginn næsta og ÆTLA ég að vera kominn í tipp topp fyrir það, verður bara einn riðill þar og er ég skráður með... jú lélegasta tímann í riðlinum sem lítur svona skemmtilega út: 

MS 400 m

  Född Förening/Land Personbästa  
Clemens Zeller 1984 AUT 45.83  
Carlos Santa   DOM 45.05  
Adebowale Ademuyewo 1983 GBR 47.59  
Fredrik Johansson 1986 IF Göta 46.33  
Mohamed Ashoor   LBA 46.40  
Thomas Nikitin 1982 Spårvägens FK 46.14
Ali Nagmeldin 1986 SUD 44.93
Ragnar Frosti 1982 Ullevi FK 48.82

Bara stemning að fá að hlaupa með þarna og gott tækifæri til að bæta sig og vonandi hlaupa sig inn í landsliðið fyrir Evrópubikarinn.

Var sumsé helvíti svekktur með að ná ekki að hlaupa almennilega í gær þannig að ég negldi á almennilega lyftingar og hoppæfingu í dag + helling af hlaupum á aðeins lægri hraða. Er ekki alveg að fatta hvað þetta er í hamnum EN það virðist sem það verði ekki verra af því að hlaupa þannig að ég testaði í dag að fara uppá 100% hraða í venjulegum skóm eftir helling af lyftingum og hoppum og jú ég finn fyrir þessu en það verður ekki verra eða neitt þannig að held að stefnan sé að negla á þetta almennilega á fimmtudaginn í göddum og.... já sjá hvað gerist :)

Var annars í munnlegu prófi í Artificial Intelligence áfanganum í dag með hópnum mínum og gekk þetta bara alveg ljómandi vel, bara núna próf eftir í hinum áfanganum á föstudaginn og þá er þetta búið :)

Sænska meistaramótið í boðhlaupum
May 25, 2008, 19:01

SM í boðhlaupum var núna um helgina hérna í Gautaborginni, helsta af mínum æfingafélögum að frétta að stelpurnar unnu 4x100m kvenna, 4/5 strákunum í 4x100m tókst að meiðast rétt fyrir mót/í undanúrslitunum/úrslitunum, merkilegt afrek það já og stelpurnar komu urðu í þriðja sæti í 4x400m.

En mynd helgarinnar er mynd af Emelie koma í mark í 4x100m sem þær rétt unnu og hún felldi sig amk mjög vel yfir marklínuna, endaði með góðum kollhnís en góð markmynd :

GöteborgsVarvet
May 17, 2008, 10:04

Já maður hefur amk ekki beint verið virkasti bloggari heimsins núna síðustu daga, en aldrei að vita nema það batni núna á næstunni, en bara verið mikið að gera í skólanum, smá vjézen með haminn þannig að það hefur bara ekki verið neitt að skrifa um í rauninni..

En hef reyndar verið alveg fastur fyrir framann sjónvarpið að horfa á HM í íshokkí, því miður vantar svona cirka 20bestu svíjana í liðið en þeir hafa samt náð að spila alveg helvíti vel en voru slegnir út af Kanada í undanúrslitunum í gær, 4-5 og munu spila á móti Finnum um bronsið á morgun held ég.

Samt langt skemmtilegasti leikurinn var á móti Rússum um síðustu helgi sem tapaðist 2-3, en var mikið um slagsmál og svoleiðis í honum sem er náttúrlega bara gamann að horfa á, eins og kom í ljós þegar Douglas Mourray var valinn maður leiksins í þeim leik, þrátt fyrir að hafa bara spilað fyrstu 2mínúturnar af honum og var þá rekinn útaf fyrir þessa skemmtilegu tæklingu:

En mun annars eyða öllum deginum standandi úti að deila út blautum svömpum til 45.000 hlaupara sem hlaupa GöteborgsVarvet í dag sem er þarmeð næststærsta hálfmaraþon í heiminum held ég örugglega, gífurleg stemning það

 

já já það er nú maí
May 13, 2008, 08:24

Virðist sem að hægri hamurinn á mér og maí mánuður eigi eitthvað voðalega erfitt með að vinna samann en í fyrra fékk ég einhvern krampa/létta tognun og eftir æfinguna í gær er sami hamurinn eitthvað vel tæpur þannig að ég efa ég hlaupi eitthvað meira þessa vikuna :(

En hljóp annars ágætlega á laugardaginn síðasta, 1x450m og 1x200m og eru þessir lengri sprettir svona aðeins að koma til núna, 450m á 56.2 (22.7 - 35.2 - 49.1 ) og svo 200m á 22.0 þannig að þetta er jú allt að koma til, bara hlaupa betur á milli 200m og 300m og þá er þetta í góðu standi.

í gær voru áttu það svo að vera 5x150m, hljóp bara 3stk þar sem ég fann smá fyrir hamnum eftir þann þriðja. hljóp þetta allt í fínum meðvindi þannig að tímarnir voru jú eftir því, 15.7 - 16.0 - 15.7 eða smá svona overspeed þannig að kenni að sjálfsögðu meðvindinum um þetta allt samann....

En annars bara allt gott að frétta, sit núna og hlusta á nokkra leiðinlega fyrirlestra í skólanum, verð kominn í sumarfrí eftir akkúrrat 2 vikur, fyrsta mót eftir 15 daga, það er farið að kólna smá úti núna (hitinn farinn undir 20°C) og já.... later folks


local