21°C
Apr 28, 2008, 19:48

 

Iss, hver þarf að vera í grikklandi í æfingabúðum þegar það eru 21°C og sól hérna í gautaborginni. Lena, ég og Moa á æfingunni í dag

One More Try
Apr 25, 2008, 08:36

Elska alveg svona daga í skólanum, mætti kl. 09 þar sem hópurinn minn í öðrum áfanganum sem ég les ætluðum að vinna í hópverkefni, kom í ljós að 2 strákarnir komust ekki í morgun og einn þurfti að fara heim fyrr þannig að við hinir tveir bara "hell no, ætlum ekki að gera þetta bara tveir" og fórum því heim, þannig að núna hefur maður allann föstudaginn fram fyrir sig, taka létta æfingu núna eftir smá, nudd klukkan 14 og svo bara fínt chill í dag finnst mér hljóma alveg glimmrandi vel.

Hljóp annars ágætlega á æfingunni í gær, 1x450m + 4x200m með 3mín hvíld á milli 200m sprettanna. Var ekki alveg nógu sáttur með 450m en fínir 200m hinsvegar eftir það:

1x450m: 59.4s (52.1s)
4x200m: 24.0s - 23.9s - 23.8s - 24.7s, þar sem síðasti var í þessari fínu sýru.

Splittaðir 400m á morgun þar sem takmarkið er að reyna hlaupa alla (samanlögðu 400m) cirka hálfri sekúndu hraðar en síðasta laugardag, og fæ svo rólegri viku í næstu viku.

Uppbyggjandi gagnrýni
Apr 24, 2008, 11:24

Tók lyftingaræfingu í fyrradag niðri í frjálsíþróttahöllinni og jú eins og ég var búinn að nefna að þá er æfingahópurinn minn í æfingabúðum í Grikklandi núna og því æfi ég mjög mikið einn núna.
Var sumsé að lyfta og var í einhverjum vandræðum með 95kg í clean-i frá mjöðm eins og síðustu 2 vikurnar og spurði því einn kastþjálfarann í liðinu mínu hvort hann væri ekki til í að horfa á þegar ég cleanaði 95kg og segja mér hvað ég gerði vitlaust þar þar sem 90kg flugu upp létt.

Fékk bara stutt og gott svar frá honum, "Ragnar, þú ert bara of aumur!".

Mæli annars með heimasíðunni www.styrkeprogrammet.se sem er heimasíða með böns af styrktaræfingum + vídjóum af öllum æfingunum (einhver hundruð) sem eru á henni, bæði einföldum sem og erfiðum æfingum fyrir nýbyrjendur byrjendur sem og lengra komna. Einni g er hægt að logga inn á síðuna og búa til sín eigin æfingaprógröm ofl.
Síðan, sem er reyndar á sænsku, er gerð af 3 strákum hér í Gautaborgini, 2 fyrrverandi og einum núverandi frjálsþíþróttastrákum.

í kvöld fyrir framann imbann
Apr 22, 2008, 16:33

Það er alls ekkert lítill lélegur leikur í sjónvarpinu í kvöld sem maður gjörsamlega verður að horfa á :

   VS   

Held að þetta verði alveg suddaleikur (já það eða dauður 0-0 leikur) enda undanúrslitin í meistaradeildinni, bara spurning hvort liðið vilji mæta Man Utd drullusokkunum í úrslitunum því að eins og Barcelona hafa verið að spila að þá er ég því miður ekki að sjá fram á annað nema að Man Utd drullusokkarnir komist í úrslitin.

Mín spá í kvöld amk, þægilegur 2-0 sigur með 2 mörkum frá Torres!

En það hefur annars verið alveg frekar hálftómlegt á æfingunum hjá mér í gær og í dag, enginn þjálfari og enginn til að hlaupa eða lyfta með, kvarta svosem ekkert gífurlega mikið þar sem það hefur bara gengið alveg mjög vel hjá mér einum og yfirgefnum, hljóp mjög vel í gær 4x4x80m og svo hin fínasta lyftingaræfing í dag.

Í rauninni ekki annað hægt en að ganga vel með allt sem maður gerir þessa dagana nú þegar veðrið er svona dúndur gott, varð frábært fyrir helgina og hefur bara orðið betra og hlýrra síðann þá. Varla séð ský á himninum í einhverja 4 daga núna og hitinn í 17° í gær og ekki var kaldara í dag, vona að þetta haldist bara svona áfram þannig að maður geti sleppt því alveg að hlaupa inni og tekið allar hlaupaæfingarna úti !

bara rétt rúmur mánuður í fyrsta mót, does not feel like I´m really there yet..!

Ekki í Grikklandi
Apr 19, 2008, 15:09

Stærri hluti æfingafélaga minna heldur af stað í æfingabúðir til Grikklands alveg eldsnemma í fyrramálið þar sem þau verða í jda vikna æfingabúðum í Rhodos (?), og eins og fyrirsögnin segir um að þá fer ég sumsé ekki með í ár, mikið að gera í skólanum og get eiginlega ekki misst af honum í 2 vikur og fannst bara hreinlega ekki þess virði að fara bara í 1 viku = ég heima í blíðunni :)

Vorið er sumsé komið hingað til lands, 13°, sól og smá gola í dag og á að vera eitthvað svipað veður næstu daga sem er alveg gífurlega næs. 
Fagnaði þessu góða veðri í dag með því að taka æfingu úti á velli svona frekar mikið léttklæddur eins og mér einum er lagið. En þessar 2 síðustu hlaupaæfingar hafa bara gengið mjög vel, fór í gegnum mjög þungar 2 vikur þar sem lítið var að virka, lappirnar þungar osfrv en núna á fimmtudaginn tók ég fína æfingu, reyndar inni þar sem það var frekar hvasst, en hljóp þá 1x450m og 4x200m með 3mín hvíld eins og vikuna áður, mun betri hlaupið nún, allt mun léttara og tímarnir þareftir jú betri:

1x450m: 58.5 (400m: 51.3)
4x200m: 24.3 - 24.4 - 25.0 - 25.9
Alveg skemmtilega mikil sýra í síðasta en náði honum samt amk undir 26s.

Í dag var svo 3xsplittaðir 400m á dagskránni með alveg fínni hvíld, farið að koma aðeins meiri gæði í æfingarnar núna þegar það er farið að styttast í tímabilið. Sumsé 200m+200m, 250m+150m, 200m+200m með 45s hvíld á milli spretta og 20-30mín á milli setta. Hefði alveg þegið örlítið minni mótvind fyrstu 200m en jú hefur oft verið verra en fékk því aðeins hægari fyrstu 200m heldur en ég vildi fá:

200m+200m = 23.8 + 24.7 = 48.5s
250m+150m = 30.1 + 18.3 = 48.4s
200m+200m = 23.3 + 24.9 = 48.2s

Hefði jú eins og alltaf viljað fá þetta eylítið hraðar en hljóp bara svo mun mikið betur heldur en undanfarið þannig að ég er bara alveg ljómandi ánægður :)

Chill helgi !

Útihlaup
Apr 10, 2008, 20:34

Mæli alveg alls ekki með því að setja niður í fyrirlestrarsal í skólanum rétt rúmum 30mínútum eftir að maður skrölti fram og til baka á hlaupabrautunum til að reyna að ná mjólkursýrunni úr lærunum.
Tók sumsé í fyrsta skiptið í ár æfingu úti á velli, veðrið bara alveg ágætt, rétt tæpar 10°C, sól og smá gola bara, innanhúshöllin líka full af einhverjum krakkagríslingum þannig að þurfa að hlaupa inni og sviga á milli þessara greyja var ekkert alveg að lokka þannig að útibrautin varð fyrir valinu.

Finnst reyndar alltaf alveg merkilega erfitt fyrstu útiæfingarnar eftir innanhústímabilin þar sem allt virkar einhvernveginn svo hrikalega langt og erfitt, þessvegna bara fínt að byrja nógu snemma og venja sig fyrir keppnistímabilið. Æfingin í dag var reyndar ekkert sú besta í heimi, 1x450m, 15mín hvíld og svo 4x200m með 3mín hvíld. Hrikalega þungur 450m sprettur og steindrapst svo í síðasta 200m sprettinum en æfingarnar undanfarið setjast alveg rosalega í lærin á mér núna, sérstaklega mánudags- og þriðjudagsæfingarnar, refsað vel núna fyrir að hafa misst svona mikið af hlaupum og lyftingum í haust.

Annars bara allt gott að frétta og ef veður leyfir að þá hleyp ég 3xsplittaða 400m spretti úti á velli á laugardaginn, annars brekkusprettir :)

Smá bitur
Apr 04, 2008, 07:50

Alveg helvíti svekkjandi að þegar maður fær loxins einhverja almennilega gaura a hlaupa með sér á æfingu að þá þarf maður að hlaupa svona líka lélega, svekk svekk.

En hljóp í gær 500-400-300-200-100, áttu allir að vera á max með eins langri hvíld og við þurftum, hljóp 500 og 400 alveg fáránlega illa og 200 var svona lala, hitt var í lagi

65s (50.0 á 400m) - 49.9 - 35.3 - 22.3 - 10.5.

Lítið um þetta að segja, sama hve þreyttur ég hef verið síðustu vikuna og að þetta hafi átt að vera rólega vikan mín að þá á maður nú andskotinn hafi það að hlaupa þetta betur.

En jákvæðu fréttirnar eru jú að Liverpool gerði jafntefli við Arsenal á útivelli í fyrradag og eiga ágætis líkur á því að komast áfram í undanúrslitin í meistaradeildinni.

Skólinn á fullu
Apr 01, 2008, 22:48

Jæja, eftir langt og gott páskafrí komst skólinn aftur á fullt í dag, reyndar alveg hrikalega afslöppuð fyrsta vikan þar sem ég er bara í þremur fyrirlestrum, einum í dag, einum á fimmtudaginn og einum á föstudaginn, mæti reyndar ekki á fimmtudaginn þar sem ég ætla að vera á æfingu þá þannig að tveir þessa vikuna, í næstu viku byrjar svo geðveikin þar sem það eru stór hópverkefni í báðum áföngunum sem við verðum að vinna í næsta 1.5 mánuðinn.... hlakka alveg gífurlega mikið til að vinna við þau eftir þetta skemmtilega hópverkefni og þennann skemmtilega hóp sem ég var í á síðustu önn!

En talandi um æfinguna á fimmtudaginn að þá gæti það orðið alveg helvíti skemmtileg æfing, en núna þessa vikuna er frekar róleg vika þar sem ég er búinn að æfa núna í fjórar án pásu og því orðinn skemmtilega vel slitinn eins og sást vel á lyftingaræfingunni í dag, en hljóp samt gífurlega vel í gær 4x4x80m enda vel stuttir sprettir :)

En já, á fimmtudaginn, planið er annaðhvort að hlaupa 500-400-300-200-100 eða 400-300-250-200-100, allt með valfrjálsri hvíld á milli og allir sprettirnir á cirka 95-100% hraða, hleyp 500 og niðurúr ef einn strákur sem heitir Fredrik (46.3s) verður í bænum, en annars hleyp ég hina æfinguna með Simon (21.7s) sem er frekar nýlega byrjaður að æfa með okkur = löng hvíld og mikill hraði, eftir það verður 3ja daga hvíld hjá mér áður en allt fer á fullt aftur á mánudaginn, gífurleg stemning sumsé :)


local