Þið megið kalla mig vondann og latann, en djöfulli sem ég er ekki að nenna í afmælispartý í kvöld, ok, ef þetta væri svona venjulegt afmælispartý hérna í bænum, ekkert mál, en einn félagi minn flutti úr bænum fyrir einhverju síðann og í annann bæ hérna cirka hálftíma fyrir utann og ég er bara gjörsamlega ekki að nenna að mæta þar sem að ég hef ekki hugmynd hvar nákvæmlega hann á heima í bænum, bara vjézen að komast þangað, það er rigning úti og ég er drulluþreyttur eftir æfinguna í dag.
En svona til að vera ekki alveg ömurlegur að þá mæti ég þangað og sé svo alveg til hve lengi ég nenni að vera þar, er eiginlega bara í liggja-uppí-rúmi-og-glápa-á-góða-myndarfíling eins og staðan er núna, æ mig aumann :(
Fín æfing annars í dag, 8x200m (3mín hvíld) þar sem ég mætti langt frá því að vera ferskur í fótunum, ein vika í viðbót og svo verður það róleg vika. Byrjaði örlítið of hratt eins og venjulega, fannst þetta vera alveg hálfómögulegt eftir 2 spretti þar sem ég var eitthvað hrikalega þreyttur í lærunum en hafði þetta af og náði fínum síðasta spretti amk:
24.9 - 25.9 - 25.4 - 25.3 - 25.7 - 25.5 - 25.7 - 24.9 = 25.4 meðalhraði.
Djöfulli sem það verður gott með algjöra hvíld á morgun !!
Eins og kanski ekki allir vita að þá skipti Jeremy Wariner um þjálfara fyrir ekkert það löngu og fyrir áhugasama og þá sem kanski ekki vita hver Ford er að þá er hérna linkur á viðtal við hann um Wariner.

Djöfulli sem þetta var æðislegt, Lena var að hlaupa á 7.26s í undanúrslitunum í 60m, bæting með 6/100s og var bara 4/100s frá því að komast í úrslit.. er náttúrlega bara hetjan mín núna !

Frétti heimanað að HM væri víst eitthvað voðalega lítið sýnt heima í sjónvarpinu, þannig að ég ákvað þá bara að vera góður strákur og leita þetta upp, En sænska sjónvarpið er með þetta live á netinu og mæli með því að þeim sem langar að sjá keppnina notfæri sér þetta.
Bara annað hvort að klippa og klístra eftirfarandi slóð inn í Windows Media Player
http://akastreaming.svtiwebb.se/vp/sesvt/ebu/sesvt_live_a.asx
Eða þá fara inn á heimasíðu SVT og þar velja "Sport/Friidrott/Inomhus VM 2008" og þar "SVT Play sänder direkt från inomhus-VM" :)
Njótið vel :)
*UPDATE*
Rúv sýnir víst mótið eftir kl. 16 á daginn, en ekki fyrri part dagsins þannig að þá er um að gera að nota þessa linka hérna ef áhugi er fyrir því :)
Bara 1 dagur eftir af af skólanum núna þessa önnina + þá prófvikan að sjálfsögðu, vorum með fyrirlestur í gær þar sem við kynntum verkefnið sem við vorum að vinna í einum kúrsinum og gekk það bara alveg ljómandi vel, enda enginn annar en ég sem ákvað að taka þetta bara í mínar hendur og sjá um þetta bara, semog að fara yfir þetta allt samann með kennaranum í dag, ekki mörgum öðrum treystandi úr hópnum mínum því miður....
Bara eitt lab eftir á morgun, klára það á eftir og þá tekur bara próflærdómurinn við + að horfa á HM í frjálsum :) verður virkilega spennandi á morgun en hún Lena æfingafélagi minn hleypur 60m undanrásir uppúr hádeginu og allt nottla sýnt í beinni þannig að maður verður alveg á tánum við að horfa á þetta, væri alveg virkilega virkilega gamann ef hún kæmist í undanúrslitin... krosslagðir fingur fyrir henni á morgun :)
Morgundagurinn líka alveg planaður eftir því að hún komist í undanúrslitin, lab dæmið á morgun á milli 08:00 - 10:00, út að hlaupa í klst, horfa á hlaupið, drífa sig og taka restina af æfingunni niðri í höll og vera kominn heima aftur og horfa á undanúrslitin uppúr fimm leytið, eftir það, próflærdómur.
Já byrjaði sumsé að æfa aftur þessa vikuna eftir algjöra vikuhvíld frá æfingum, byrjaði á lyftingunum á mánudeginum og tók nokkra spretti (2x4x100m m/3mín hvíld) á þriðjudeginum, var víst ákveðið að taka lyftingarnar á undan fyrstu vikuna þannig að sprettirnir yrðu ekki of hraðir....
En finnst ég bara ekki hafa verið að hlaupa vel hinsvegar, hvorki á þriðjudeginum né í dag þegar ég var farinn að þreytast pínu, reyndar of létt æfing í dag fannst mér, 2x450m og fara í gegnum 400m á 57s.... með 15mín hvíld og svo 3x200m með 3mín hvíld á 26.0-25.5-25.0, og þrátt fyrir að hlaupa ekkert spes vel í dag hljóp ég á:
450m: 65.4 (27-57.5 á 200m & 400m) aðeins of hratt fyrstu 200m og hægði of mikið á mér seinni 200m.
450m: 63.5 (28-56) jafnt og fínt og miklu betra hlaupið en fyrri
3x200m: 25.? - 25.5 - 24.5 (mistókst aðeins tímatakan á fyrsta)
Var ekkert dauður neitt eftir þetta en fannst ég ekki hlaupa neitt spes samt í síðasta 200m þannig að í næstu viku bætum við einu setti við af 3x200m og ætla að hlaupa 450m aðeins hraðar (55-56s í gegnum 400m) þá held ég að þetta verði bara fínt.
Þessi mynd er bara of frábær til að ekki hafa hana með hérna :)


