Ísland bezt í heimi ... eða ?
Jan 09, 2008, 08:24

 Eins og allir vita að þá erum við íslendingar fallegust, sterkust, ríkust, hamingjusömust, skemmtilegust, best í bólinu, mest tæknivædd og ég veit ekki hvað samkvæmt öllum heimsins skoðunarkönnunum og að sjálfsögðu trúum við þessu og tilkynnum hverjum manni sem á vegi okkar verður hve frábær við séum.

Varð því fyrir smá sjokki í gær þegar ég las á mbl.is:

Þriðja versta deild í heimi

Eftir Trausta Salvar Kristjánsson trausti@24stundir.is
Senda frétt Senda frétt
Blogga um frétt Blogga um frétt

Bloggað um fréttina

  • Þorgeir Pálsson

    þriðja versta?

Ísland er í 97. sæti af 100 á lista Alþjoðasamtaka knattspyrnusögu og tölfræði yfir bestu og sterkustu deildarkeppnir í knattspyrnu. Súdan, Armenía, Túrkmenistan, Níkaraqva og Víetnam eru allt hærra skrifaðar fótboltaþjóðir.

Aðeins Kasakstan, Bosnía&Hersegóvína og Aserbadsjan þykja veikari en Landsbankadeildin. Framkvæmdastjóri KSÍ tekur listann ekki alvarlega.

Og er í smá sjokki við viðbrögðum Framkvæmdastjóra KSÍ, "tekur listann ekki alvarlega".... en þá allar hinar tölfræðirnar?? er þá ekki heldur að marka þær ?? hverju á maður að trúa ??

e...e... erum við þá ekki best í heimi ?


local