Boyz II Men
Apr 09, 2008, 22:39

Boyz II Men

Hverjir muna ekki eftir "End of the Road", "Water runs dry", "One sweet day" og fleirum snilldarlögum með rjóma-smjör gaurunum í Boyz II Men?
Amk er ég einn af þeim, hef alltaf fílað þessi rjóma RnB lög þeirra alveg í botn og frétt núna um helgina að þeir væru að spila hérna í Gautaborginni núna í kvöld. En miðað við það að ég er hérna heima að blogga um þeta þýðir sumsé að ég fór ekki, mig gjörsamlega alveg dauðlangaði, en 5000kr verðið á miðanum inn á tónleikana er bara cirka 5000kr of mikið fyrir mig og þurfti því að sætta mig við símtal frá 2 frjálsíþróttafélögum mínum, Dennis og Martin, sem eru þar núna og leyfði þeir mér að hlusta á eitt lag í gegnum símann... sit því bara heima að hlusta á þá í tölvunni og horfá á nokkur vídjó á youtube þar sem ég kemst ekki nær þessu í augnablikinu :(

local