Ef þetta hefur einhverntímann verið fyndið að þá er það náttúrlega löngu hætt að vera það núna. En hljóp sumsé 300m um helgina svona til að testa hvort að hamurinn væri í lagi og jújú hann var fínn en stífnaði eitthvað aðeins í öðrum kálfanum í staðinn og á mánudaginn fór hann í rugl þegar ég ætlaði að hoppa aðeins yfir grindur og niðurstaðan er að ég er með krampa í kálfanum núna !!
Hægri hamur - vinstri hamur - vinstri kálfi... hvað er þá næst ?
Þannig að ég missti af drullugóðu 400m hlaupi í gær á FGP mótinu hérna í Gautaborginni en ætti að vera orðinn góður um helgina eftir meðferð alla vikuna, en held bara að næst á dagskrá hjá mér verði að fara í blóðprufu og láta rannsaka það og tékka hvað það er sem vantar í mig þar sem að þetta er orðið alltof langt frá því að vera eðlilegt... !
En já, fyrir þá sem ekki vita að þá fer ég heim til Íslands núna á mánudaginn og verð þar í viku, kíkja aðeins heim á krók, keppa á bikarnum (vonandi) og einhver meiri stemning.
"Ég er 90% viss um að þú ættir að geta hlaupið á fullu um helgina"
Þannig hljómaði Napropatinn minn eftir meðferðina á þriðjudaginn og kallinn hefði bara ekki getað haft mikið meira rétt fyrir sér þar sem að ég gat neglt almennilega á einn 300m sprett í gær, gífurlega gott það þannig að ég ætla að keppa núna á þriðjudaginn í 400m hérna í Gautaborginni.
En vona að landsliðið sem er statt í Eistlandi á Evrópubikarnum í 2.deild hafi það eitthvað betur heldur en Svíjarnir í Tyrklandi í fyrstu deildinni þar sem allir eru víst brjálaðir út í skipurleggjendurna basicly útaf öllu, allt er víst í rugli og skipulagsleysið er víst alveg í hámarki, gífurleg stemning það sumsé...
Svíjarnir dottnir út úr EM, spiluðu gífurlega leiðinlegann fótbolta og áttu bara því miður ekki skilið að komast áfram, ég spáði Holland sigri í keppninni en þeir voru flengdir all illilega af Rússunum í gær þannig að mér er basicly núna nokkuð sama hverjir vinna þessa blessuðu keppni...
"Og Ragnar, þó að þú standir 10m frá strætónum og hann er að fara að keyra af stað að þá máttu ekki hlaupa til að ná honum"
Hitti Dohsé, Napropatinn minn, núna í dag og fékk bara þær bestu fréttir sem ég gat fengið, engin tognun eða neitt, fékk bara feitann krampa í haminn í gær og þarf bara að vinna í því núna næstu daga að fá hann til að sleppa endanlega og ef allt gengur eins og í fallegri sögu að þá gæti maður byrjað að hlaupa aftur á fullu eftir nokkra daga, annars eitthvað aðeins seinna, bara fara til hans núna á hverjum degi næstu daga, frá straum, ultrasound, nudd og eitthvað meira shitt á þetta og bara vona það besta.
En síðann er jú þá næsta vandamál að finna útúr því afhverju ég er að fá þetta í báðar lappirnar á einum mánuði...
// Ragnar í betra skapi en í gær :)
7 mörk í 2 leikjum, og það á móti Frökkum og Ítölum, held að Hollendingar eigi eftir að ná helvíti langt á EM í ár, djöfulli sem þeir eru að spila skemmtilegann fótbolta.
En aðalleikurinn verður að sjálfsögðu Svíþjóð - Spánn í dag. Svíjarnir komur mjög svo á óvart á móti Grikklandi og spiluðu allt annann fótbolta heldur en þeir hafa gert síðasta hálfárið og Spánverjar rúlluðu yfir Rússa og hafa sjaldann spilað jafn vel og í undanförnum leikjum. Er bara drullusmeykur yfir hvernig sænsku varnamennirnir eiga að geta stoppað Villa og Torres..... mín spá 2-1 fyrir Spáni.
Fer annars með landsliðinu á Evrópubikarinn í Eistlandi um næstu helgi þar sem ég hleyp 4x400m boðhlaup, smá svekk að hafa ekki náð að hlaupa betur á þessum fyrstu mótum og fá að hlaupa líka 400m, en þetta verður bara fín stemning.
Hleyp annars ekki 100m í Borås í dag, virðist sem þessi blessuðu baklæri á mér séu ekki alveg með á nótunum þegar ég hleyp sem hraðast og best á æfingunum, fékk í hægra baklærið í maí mánuði þegar ég hljóp í fínum meðvindi og núna á fimmtudaginn var ég að æfa spretti frá startblokk, fyrir 100m sem ég ætlaði að hlaupa í dag, og gekk það bara svona líka dúndurvel nema að ég fann bara vinstra lærið stífna aðeins þannig að svona til að taka enga óþarfa áhættu svona í augnablikinu að þá geymi ég 100m í bili en ætla að reyna að hlaupa 200m á morgun.
Þar kom að því, eftir allnokkrar vikur af heiðskýrum bláum himni, góðum hita og almennt snilldarveðri að þá að kólna núna aðeins þessa vikuna og hitinn því fara rétt undir 20°C og í dag er Alskýjað og rok... gífurleg stemning það jú.
En loksins loksins sleppti þetta almennilega hjá mér á brautinni í gær, hljóp mína langbestu æfingu lengi, bæði tímalega og tæknilega séð, 150m-350m-150m, hljóp 350m mun betur og hraðar en á fyrstu 2 mótunum og var bara ferskur eftir það þannig að að hlaupa 50m í viðbót hefði ekki verið mikið mál, mjög gott þetta og gamann að vita að þetta finnst þarna einhverstaðar :)
Var annars ekkert smá stoltur núna um helgina þegar krakkarnir sem ég er að þjálfa voru að keppa, stórbætingar hjá þeim flestum og ég öskrandi og æpandi frá stúkunni í bongó blíðu þannig að þetta var bara algjör snilldarhelgi.
En af sumarvinnu er það annars að frétta að ég verð þjálfari á frjálsíþróttanámskeiði hjá einhverjum pínulitlum krökkum núna næstu tvær vikurnar and that´s it so far... eehhh hver þarf peninga til að lifa ?
Jæja, mót nr. 2 á dagskránni hjá mér er á morgun, en þá hleyp ég 400m í Stokkhólmi í fínu hlaupi þar sem ég er skráður með 5ta besta tímann, basicly lítið um það að segja nema að hætta að hugsa og bara hlaupa og ekkert kjaftæði...
Veðrið á að vera basicly snilld á morgun, hægur vindur og cirka 30°C, verður gífurleg stemning í lestinni á morgun en ákvað á endanum að taka lestina bara í fyrramálið og koma heim aftur um kvöldið, verð svo eitthvað að coacha krakkana mína á móti hérna í bænum yfir helgina.
Sumarvinna annars já.... væri ekki leiðinlegt svona ef það myndi reddast núna næstu dagana....
Djöfulli sem það er sweet að vera laus við skólann í bil, vaknaði um helgina og fann bara þvílíkann létti, munur að geta loxins vaknað án nokkurs stress og pressu frá skólanum.
Átti annars góða lyftingaræfingu á laugardaginn þegar ég bætti mig svona loxins í cleani frá mjöðm, hefur ekki smollið neitt almennilega síðustu mánuðina en núna síðustu 2 vikurnar hefur þetta allt verið að koma til og loxins kom 5kg bæting núna á laugardaginn, úr 100kg í 105kg og var hrikalega nálægt á 107.5kg þannig að alls ekki ómögulegt að negla upp 110/112.5kg áður en sumarið er búið.
(Ef Christian Olsson tekur 145kg með sínar kjúklingalappir að þá geta mínar kjúklingalappir það líka !)
En annars bara gott chill núna, þvo, laga til og koma sér bara í gírinn fyrir MAI Galan í kvöld. Ekki alveg kominn þessi "hey shitt, er að fara að keppa" fílingur ennþá, enda ekkert alltof stórar væntingar í rauninni fyrir mótið, búinn nottla að vera í smá fucki með haminn og ekki náð að hlaupa þessar gæðaæfingar eins og ég hefði viljað fyrir mótin + að maður hefur í staðinn verið að lyfta, hoppa og hlaupið meira af magni í staðinn þannig að maður ætti miðað við það kanski ekki alveg að vera sá ferskasti í kvöld. En sé samt ekkert á móti því afhverju ég ætti ekki að hlaupa undir 49s í kvöld.

