Jæja, á morgun er svona mesta geðveikin held ég búin á þessu lesári, komum einu verkefninu frá okkur ídag og kynnum hitt á morgun, hlakkar bara mjög mikil til þeirrar kynningu þar sem við erum alveg helvíti sáttir með hvernig það hefur gengið og náði ég svo að sjálfsögðu að fixa smá grafískt á þetta allt samann þannig að þetta lúkkar allt samann miklu meira kúl núna + að auðveldar áhorfendunum til muna að skilja hvað við höfum verið að gera (sem ég nenni ekki að útskýra núna hérna)
Svo bara ein ritgerð, eitt munnlegt próf og eitt skriflegt í næstu viku = sumarfrí eftir hádegi á föstudeginum.
En annars mjög svo jákvæð æfing í dag, búinn að vera að vinna með haminn og reyna að koma honum í lag, negla á góðar lyftingar, hopp og svoleiðis á hann og virðist sem það hafi hjálpað því að ég gat hlaupið alveg óvenjuhratt í dag næstum án þess að finna neitt fyrir honum, 8x200m(frá 25s - 23.5) með 3mín hvíld þannig að aldrei að vita nema maður keppi þá í 300m á miðvikudaginn næsta svo framanlega sem ég geti neglt á æfinguna á mánudaginn !
Jæja, kominn inn á síðustu vikuna í skólanum núna, bara hitta kennarann í einum áfanganum á fimmtudaginn og útskýra munin á þessum mismunandi útgáfum af verkefninu sem við gerðum í áfanganum og eitthvað svoleiðis blablabla.
Á föstudaginn er það svo demo sýning á verkefninu hjá hópnum mínum í hinum áfanganum og útskýra eitthvað svo hvernig það virkar, sitjum núna í vikunni og erum að leggja lokahönd á það.
Væri svo snilld að geta skilað inn ritgerðinni um það verkefni í næstu viku. Sem er jú prófvikan og í þessum áfanga er "bara" munnlegt próf á þriðjudeginum (minnir mig) og svo venjulegt próf í hinum áfanganum á föstudeginum.
Svo bara SUMARFRÍ, fer svo reyndar svoldið mikið eftir hvernig það fer með sumarvinnu hve almennilegt þetta sumarfrí verður....
En að æfingunum já... hamurinn ekki orðinn nógu góður ennþá, eiginlega nákvæmlega sami fílingur núna og akkúrrat fyrir ári síðann, fékk þá í haminn í byrjun maí og var sumsé í rugli með hann líka þá.
En kemst ekki hraðar en 90% í augnablikinu og endaði á því að hlaupa 3x300m, þá frekar rólega fyrstu 100m og svo keyra á milli 100m og 200m og rúlla þetta á 37-38s.
Get samt hoppað og neglt almennilega á lyftingarnar þannig að það verður sennilega eitthvað meira um það núna þangað til að ég get farið að hlaupa 100% aftur.... gífurleg stemning þetta alveg já...
Gæti nú bara verið að í ár fari ég í annað skiptið á ævinni í eitthvað frí erlendis... fyrsta og eina skiptið var með famillíunni til Hollands þegar ég var 14 ára (minnir mig) og var það alveg dúndrandi gamann. Og í ár að þá gæti ég sumsé verið að fara til spánar síðustu vikuna í september en okkur nokkrum krakkaþjálfurunum hérna var boðið að fara í viku "þjálfaranámskeið" til Spánar í haust, við nottla bara hell yeah og skráðum okkur og komumst að því vonandi fljótlega hvort að við komumst öll með eða ekki, myndi þá kosta mig tæpar 15.000kr fyrir vikuna sem gæti mögulega verið innan viðráðanlegra marka fátæka námsmannsins ...
Já maður hefur amk ekki beint verið virkasti bloggari heimsins núna síðustu daga, en aldrei að vita nema það batni núna á næstunni, en bara verið mikið að gera í skólanum, smá vjézen með haminn þannig að það hefur bara ekki verið neitt að skrifa um í rauninni..
En hef reyndar verið alveg fastur fyrir framann sjónvarpið að horfa á HM í íshokkí, því miður vantar svona cirka 20bestu svíjana í liðið en þeir hafa samt náð að spila alveg helvíti vel en voru slegnir út af Kanada í undanúrslitunum í gær, 4-5 og munu spila á móti Finnum um bronsið á morgun held ég.
Samt langt skemmtilegasti leikurinn var á móti Rússum um síðustu helgi sem tapaðist 2-3, en var mikið um slagsmál og svoleiðis í honum sem er náttúrlega bara gamann að horfa á, eins og kom í ljós þegar Douglas Mourray var valinn maður leiksins í þeim leik, þrátt fyrir að hafa bara spilað fyrstu 2mínúturnar af honum og var þá rekinn útaf fyrir þessa skemmtilegu tæklingu:
En mun annars eyða öllum deginum standandi úti að deila út blautum svömpum til 45.000 hlaupara sem hlaupa GöteborgsVarvet í dag sem er þarmeð næststærsta hálfmaraþon í heiminum held ég örugglega, gífurleg stemning það

Djöfulli sem ég er alveg að elska þetta veður sem er búið að vera hérna og á að vera áfram amk næstu dagana, bara eini ókosturinn er hvað það er búið að vera mikið að gera í skólanum þannig að maður hefur setið alltof mikið inni og lítið fengið að njóta blíðunnar. Fékk reyndar fína 4klst í gær þegar ég var að vinna í Vårruset sem er svona konuhlaup hérna í bænum, 19.000 konur að hlaupa/skokka/labba og ég staddur á bílastæðinu að stjórna umferðinni þar og svo útskýra fyrir síðustu 100 bílstjórunum að það væri fullt þannig að þeir hefðu beðið í röðinni til að komast inn á bílastæðið til einskis... gífurleg stemning það :) En reyna að negla á almennilega æfingu í dag, 3x350m frá blokk á keppnishraða, dúndurgott veður, sól, 20°C og logn þannig að málið að gera þetta almennilega í dag!
úff, loksins getur maður slappað aðeins af núna eftir alveg dúndurlærdómsviku.
Sat basicly frá miðvikudegi og til og með meirihluta sunnudagsins með þetta blessaða verkefni í einum áfanganum sem við erum basicly búnir með nægilega mikið til að geta skilað því inn, en bara þessi helvítis fullkomnunarárátta í mér sem fær mig til að sitja aukalega með núna til að fixa smá hér og laga smá þar.
Sat svo á sunnudeginum og mánudeginum með 3 artiklar(greinar ?) sem við áttum að lesa, skrifa ritgerð um og undirbúa fyrirlestur sem við héldum svo núna í morgun, alveg ofboðslega leiðinlegt og óáhugavert og þessvegna fínt að klára það af núna!
Þannig að núna getur maður einbeitt sér að hópverkefninu í hinum áfanganum... bara 3 vikur eftir og svo sumarfrí :)
En æfingarnar já, þær hafa bara gengið mjög vel, amk þessir aðeins styttri sprettir, var róleg síðasta vika en hljóp ágætis æfingu á fimmtudeginum, 1x450m og svo 4x200m með 3mín hvíld
450m: 59.5 (51.9 í gegnum 400m), æi.. já ekkert meira um það
4x200m: (24.4 - 23.8 - 23.4 - 24.7) bara mjög sáttur með þetta, aðeins of hægur fyrsti spretturinn en mjög ánægður með hina, 3ja mínútna hvíld og suddamjólkursýra í og eftir síðasta.
En núna eru æfingarnar komnar á fullt aftur og núna fara þær að nálgast meiri keppnishraða, farið að styttast í mót og því kominn tími til að slípa þetta til aðeins :)
Þetta er náttúrlega alveg hætt að vera fyndið, en það er sama klukkan hvað ég fer að sofa, ég er alltaf alveg glaðvaknaður rétt í kringum 7 á morgnanna!
Þetta hefur verið svona núna í cirka 2 vikur, einmitt verið frekar mikið að gera hjá mér og hefði alveg gott af því að ná að sofa út þá daga sem maður hefur tíma til að sofa almennilega... en nei.
Þetta er náttúrlega að verða komið út í algjört rugl hjá mér núna, er róleg vika í æfingunum, og bara alltof mikið að gera í þessum project áföngum hjá mér og er ég líka búinn að vera alveg úbermikið að læra núna þessa síðustu daga svona loxins þegar maður hefur tíma fyrir æfingunum.
Var að til kl. 02 aðfaranótt miðvikudags, til cirka 10 í gærkvöldi og sit ennþá niðri í skóla núna, klukkan er 22:25, eigum að skila inn verkefni eftir cirka klukkutíma og erum basicly búnir að gera þetta 2 af 6 í þessum blessaða hópi okkar.
Ég hata fólk og hópavinnur... en er orðinn alveg ógeðslega þreyttur og er ekki að fatta hvað ég er að skrifa þannig að spurning að halda áfram að forrita....
Ég er náttúrlega svo gífurlega ungur að "alla" mína tíð hef ég borgað með korti enda peningar og bankar bara eitthvað sem finnst í gömlum orðabókum. En mundi svo alltíeinu í dag í mínu peningaleysi (færsla gærdagsins) að ég hafði einhverntímann séð foreldramína fara útí banka, fylla út eitthvað pínulítið blaðakvikindi, rétta gjaldkeranum og fengu peninga til baka.
Alveg að spá í að fara aðeins aftur í tímann á morgun, labba niður í banka, bíða þar í nokkurra tíma röð og prufa þessa fornu aðferð til að taka út peninga þannig ég þurfi nú ekki að svelta um helgina.


