Aaahhhh, tók ekki nema mánudagur kl 16:30 - miðvikudagur kl. 08:30 = 40klst frá því að ég kom aftur til gautaborgar og þangað til ég komst inn í íbúðina mína, djöfulli sem það er líka næs! þakka Sandin og Bea fyrir að vera svona æðisleg og leyfa mér að vera hjá þeim síðustu 2 daga :)
Já maður er ekki alveg beint í góðum tíma með allt...
En kem sumsé til Íslands á morgun, lest kl 14:40 (vonandi) og lendi einhverntímann rétt uppúr miðnæti í Keflavík þannig að jú maður ætti svona að far að verða tilbúinn með allt. En nei ekki hann Ragnar, enda ekki alveg sá stressaðasti í heimi og fór plan kvöldsins eiginlega fjandans til þegar ég bauð 5 æfingafélögum að koma og horfa á GE Galan sem fór fram í Gautaborginni í kvöld.
Johan Wissman brilleraði og vann 400m hlaupið á móti Chris Brown og Christopher Tyler, þeim sem komu í fjórða og 6. sæti á undan Wissman á HM s.l. sumar.
Susanna Kallur heldur áfram í stórforminu sem hún er í og vann grindina á 7.74 og á því núna 5 bestu tíma ársins í greininni, þar á meðal heimsmetið sem hún setti um daginn þegar hún hljóp á 7.68!
En já, ég og ekki tilbúinn já......
Er sumsé að þvo þvottinn minn núna, verður tilbúinn uppúr miðnæti og pakka því í fyrramálið. Var að klára núna (eftir ég henti fólkinu út) verkefnið sem ég á að skila á morgun og skýrslunni úr hópverkefninu okkar (þar sem ég er verkefnastjórinn í hópnum) og þarf að fara yfir með kennaranum á morgun.
ÉG Á EFTIR AÐ KAUPA LESTARMIÐA, ekki haft tíma til að fara niður á lestarstöð og fixa það, redda því fyrir hádegi á morgun ... :) raka hárið geri ég í fyrramálið... það var eitthvað meira en hlýt að muna eftir því á morgun :)
amk, góða nótt elskurnar mínar og sé einhverja af ykkur um helgina :)
já og ekki gleyma því nottla, brilleraði alveg á startblokkaæfingunni í dag (brillera = miðað við hvað ég er skelfilega lélegur í startblokkinni...) bara jákvætt shitt það :)
Get ekki mælt með því fyrir nokkurn mann að gleyma nestisboxinu sínu í skólanum, finna það þar eftir 5-6 daga og opna það... næstum hægt að kalla matarleyfarnar í því gæludýrin sín eftir svona marga daga :)
Held að það sé alveg afrek útaf fyrir sig að hafa sofið yfir sig þegar maður átti að mæta í nudd kl. 16:00... Gjörsamlega steinrotaðist í dag eftir skólann og þurfti vekjaraklukkan að hringja í 40mínútur áður en ég vaknaði :S
En nuddið var amk gott og vel þegið, komin 2 núna þessa vikuna og ekki frá því að stífleikinn í löppunum sé að verða horfinn bara, aldrei að vita nema maður verði bara sprækur á mótinu um helgina :)
Já, hleyp sumsé 60m og 400m um helgina og er svo búinn að kaupa flugmiðann heim á Bikarkeppnina um næstu helgi en þetta verða 2 síðustu mótin hjá mér á þessu innanhústímabili, sad but true..!
Aldrei að vita nema maður skelli sér í cirka svona eitt stk 60m hlaup um helgina.
Málið er nebbla að í augnablikinu eru engir spes skráðir í 400m hlaupið á GP Galan Inomhus sem verður hérna í Gautaborginni um helgina og er því að spá í að hlaupa bara 60m á undann 400m (ef ég hleyp það þeas).
Á náttúrlega ekkert alltof góðann tíma í 60m, 7.27s og hljóp það einu sinni í fyrra á 7.49s sem er náttúrlega skammarlega lélegt, okej jú það var um jól og eftir 400m æfingu en samt... fínt að nota tækifærið og hita smá upp fyrir bikarinn sem er þarnæstu helgi, er það ekki :)
Setti annars myndaalbúmið í gang aftur áðann, hafði ekki getað uploadað myndum síðann einhverntímann í fyrra en náði að kóða það allt samann um helgina þannig að það virkar núna og milljón sinnum léttara og þægilegra heldur en áður.
Ætla því núna að reyna að vera duglegur að dæla inn einhverjum skemmtilegum myndum reglulega :)
Æi hvað ég elska að ferðast....
Sit núna á Kastrup, ætti í rauninni að vera að lenda núna, er víst ekki búið að vera skemmtilegasta veður í heimi á klakanum þannig að flugið frestað og skemmtilegheit en mér til mikillar ánægju að þá er stefnt á að flugið mitt fari eftir klukkutíma, flýg með Icelandair, en mér til góðs félagsskaps eru Gauti og Bjössi Margeirs sem verða hérna eitthvað langt frameftir nóttu þar sem Iceland Express vélin þeirra er í ruglinu, reiknað með því að þeir lendi einhverntímann í fyrramálið...
Ef þetta er ekki bara draumur í dós fyrir mót að þá veit ég ekki...
Shitt, fékk alveg smá panic í morgun.
En eftir sallarólegann og fínann morgunmat fór ég inná klósett til að smella linsunum í augun á mér, gekk ekki betur en svo að ég missti helvítis linsuna, okej okej, all good, ekki eins og að þetta hafi verið í fyrsta skiptið sem það gerist, setti því hina linsuna í hitt augað á mér enda margsannað sig að það er ómögulegt að finna svona lítinn gegnsæjann hlut án amk annarrar linsunnar, eenn, ég bara hreinlega fann ekki hina helvítis linsuna, skreið eftir golfinu á baðherberginu, leitaði á vaskinum og á fötunum mínum en helvítis linsan var bara horfin, en til að gera langa sögu stutta að þá var ég í 10mínútur skríðandi eins og einhver fáviti þangað til ég fann hana loxins, nákvæmlega beint fyrir neðann mig þar sem ég hafði basicly leitað 1000 áður.
Hefði verið smá vjézen þar sem þetta eru nú síðustu linsurnar mínar, greyið var orðið smá þurr og skítug en ekkert sem ekki er hægt að skola af :)
En annars að þá er mr. Björn Margeirsson í heimsókn hérna hjá mér, er að lesa einhvern doctors kúrs hérna í Gautaborginni núna í 3 daga og bauð ég honum bara að búa hjá mér á meðann, förum svo samann til Íslands á fimmtudaginn til að rústa þessu meistaramóti ;)
En óvenjulega rólegir dagar í skólnum annars núna, sem ég er btw alveg að fíla í botn, þannig að ég hef komið alveg ótrúlega miklu frá núna síðustu daga + verið duglegur að kíkja í nudd og koma löppunum í svona sæmilega hæft keppnisástand.
Lyftingar í kvöld og hlaup á morgun.

