Kíkti norður á Akureyri í gær á þessa bara fínu æfingu í boganum með Arndísi og Gísla Páls, fínt að taka eina svona almennilega hlaupaæfingu svona á meðann maður er á klakanum, bara versta við að það var 10-15° frost úti sem þýðir nottla að það er þá cirka 0° heitt inní höllinni, alveg magnað shitt það.
Varð svo þess heiðurs aðnjótandi í gær að vera valinn frjálsíþróttakarl UMSS (reyndar ekki alveg sú mesta samkeppni í heimi ;) ) en kom síðann nr. 2-3 í vali á íþróttamanni Skagafjarðar, alveg helvíti magnað það, deildi sætinu með einhverjum fótboltakalli, en nr. 1 kom Þórarinn Eymundsson hestakall sem sló í gegn á heimsmeistaramóti Íslenska hestsins s.l. sumars.
En ekki nóg með þetta þar sem að seinna um kvöldið tókum við smá hættuspil, ég, Arndís, S.Arnar og Arnar Már og haldiðið að ég hafi ekki bara tekið það líka, kanski eins gott fyrir þau líka þótt að ég sé helvíti leiðinlegur sigurvegari að þá er ég ennþá verri loser, en alltaf gamann að vinna þetta :)
Alls ekki mikil virkni hérna hjá manni í jólafríinu enda mikið að gera við að gera ekkert mikið.
Annars alveg rosalega gott og gamann að koma heim yfir jólin, hitta fjölskylduna og alla gömlu góðu vinina sem maður hittir rétt svo einu sinni á ári auk þess að éta sig gjörsamlega troðfullann af mat í jólaboðunum, svo mikið að maður er kominn með þetta góða samviskubit og farinn að líta í spegil og finnast maður vera orðinn feitur eftir einungis viku á landinu (takist með lítilli alvöru)
Var alveg óvenjulega fljótur og duglegur að redda jólagjöfunum í ár, var búinn að kaupa allt um klukkan 16 á þorláksmessu og missti því að árlegu stemningunni niðri í Skagfirðingabúð rétt fyrir lokun á þorláksmessukvöldi við að virkilega reyna að finna einhverjar jólagjafir... jólin eru bara æðisleg.
Gamann að því að síðasti mánuður hefur verið alveg mjög vel sóttur á síðuna og á meðann heimsóknunum fjölgar að þá fækkar commentunum, en það merkilegasta við þetta allt samann er hvaðan heimsóknirnar eru að koma og þegar ég skoða síðustu 50 að þá eru þær frá þessum löndum:
Suður Afríka, Pólland, Búlgaríu, Noregi, Danmörk, Tailand, Mexicó, Bretland,
Frakkland, Tyrkland, Spánn, Þýskaland, Kólombía, Bandaríkin, Egyptaland, Svíþjóð,
Ítalía, Mauritius, Saudi Arabia, Brasilía, Perú, og gamla góða Ísland
Gamann að þessu :)
En býst ekki við því að koma og keppa á áramóti Fjörmanns núna á laugardaginn, skelli mér í staðinn norður á Akureyri á morgun og hleyp í höllinni þar á fínu 100m brautunum, reyna að vera bara sem mest fyrir norðan hérna núna yfir jólin en reyna að taka eina almennilega æfingu 2.jan áður en ég fer aftur út þann 3ja.
En æfing í Varmahlíð kallar, later folks !
Vil bara óska ykkur öllum
gleðilegra jóla og farsældar á
komandi ári
Ahhh, gott að geta hlammað rassinum á sér niður í eldhúsið heima í ró og næði, japla á smá Cocoa Puffs, drekka kaffi, áhyggjulaus (svona að mestu) og undirbúa sig fyrir Jólamót UMSS !
En allt gekk ekki eins og smurt í gær á leiðinni, ferðin tók ekki nema 21klst frá lestarstöðinni í Gautaborg - Sauðárkrókur sem verður að teljast alveg sæmilega langt miðað við Svíþjóð - Ísland.
En byrjaði allt í gær með taxaferð rétt fyrir kl. 04 heima frá mér og útá lestarstöð, fékk reyndar þessa "Ég-er-svo-að-gleyma-einhverju-tilfinningu" um leið og ég setti mig uppí leigubílinn, tilfinnining var rétt og þegar taxinn var búinn að keyra 5metra öskraði ég STOP, hljóp út og kom aftur með hleðslutækið fyrir tölvuna mína. Núna var maður ready to go !
Var annars þessi fína stemning niður á lestarstöð, svona cirka 10 lögregluþjónar í kringum eitthvað unglingagengi þar sem einhverjir þeirra stóðu glenntir með hendurnar á vegg, búnir að tæma úr vösunum, lögregluhundur þarna og allur pakkinn, greinilega verið eitthvað smá action þarna rétt áður en ég mætti á svæðið.
En lestarferðin gekk bara ljómandi fínt, steinsvaf alla leiðina sem var alveg ljómandi ljómandi gott eftir 1klst svefn um nóttina og mætti því alveg ferskur og kátur á Arlanda flugvöllinn í Stokkhólmi, reyndar smá svekktur með hann þar sem að það eru ekkert gífurlega margar búðir þar og gat því ekki keypt neinar jólagjafir þar, á því ennþá allar eftir þannig að það stefnir í að þetta verði eins og síðustu 10ár, redda því bara á þorláksmessu!
Fluginu seinkaði svo að sjálfsögðu með 1.5klst þannig að maður dundaði sér bara við að gera ekki neitt á flugvellinum, hafði reyndar náð mér í alveg gott magn af bíómyndum og þáttum áður en ég lagði af stað þannig að maður náði alveg að glápa á það svona á meðann maður var að bíða. Mætti svo inn í vélina og haldiðið að maður hafi ekki bara fengið sæti við hliðina á einu manneskjunni sem ég þekkti í allri vélinni, en Elli sprelli nokkur Ísfjörð hafi fengið sætið við hliðina á mér, gömul hetja úr framlínunni hjá KS í forðum, þannig maður sat bara og spjallaði við hann á leiðinni.
Hélt reyndar ég myndi fá feita henda í gúmmíhanska uppí rassgatið á mér á Leifsstöð þegar ég var að fara að labba í gegnum tollinn þar sem að dóphundurinn sem var að rölta þarna um sýndi mér alveg sérstakann áhuga og stökk upp á löppina á mér og fór eitthvað að þefa á vasanum á buxunum mínum þegar síminn þar hringdi alltíeinu, missti hann þá allann áhugann og rölti í burtu :)
Var svoldið vjézen að finna sér far norður þar sem ég vildi nú reyna að komast heim á föstudeginum og eftir 3-4 breytingar á ferðaplaninu endaði á því að ég keyrði norður sjálfur bíl frænda míns sem honum vantaði að koma norður, fannst þetta bara fínt plan, lítil umferð svona seint á föstudagskvöldi og því bara tónlistinn sett í botn og sungið eins og vitleysingur alla leiðina, en kom tvennt uppá á leiðinni.
Fyrst svoldið áður en maður kemur að hafnarfjalli en þá hafði nokkrum mínútum áður fólksbíll keyrt á hest sem lá á götunni með innyflinn basicly útum allt og bíllinn náttúrlega alveg í köku.
Svo númer 2 hjá félögum mínum í lögreglunni í húnavatnssýslu, hafði bara keyrt mjög rólega alla leiðina enda lá ekkert á og keyrði bara á milli 90-100 alla leiðina, mjög lítil umferð á leiðinni, er svo nýkominn framhjá Staðarskála þegar ég sé alltíeinu blá ljós fyrir framann mig og ég bara whut, sá svo að það var enginn annar bíll nálægt þannig að þetta hlaut að vera ég..., niðurstaðan, var tekinn á 106km/klst, og þarf að borga FUCKING 23.000KR !!!! djöfulli sem ég var svekktur með þetta og hef svoooo ekki efni á þessu. Alltaf gamann að koma á klakann ha :)
En annars mættur á krókinn, fílingurinn bara ágætur í dag, vel þreyttur en fínn, taka létta æfingu og keppa í langstökk án atrennu, þrístökki án atrennu og hástökki án atrennu, verður bara stemning :)
Var ég ekki búinn að vera röfla kvarta og kveina einhverstaðar yfir því að lestin mín færi klukkan 06:00 núna á morgun? Náði í lestarmiðann í gær og sá þá bara að ég hafði víst haft svona helvíti rangt fyrir mér þar sem að lestin fer af stað 05:12 = ég þarf að vera kominn á fætur svona cirka 03:30 til að geta fengið mér að éta og komist niður á lestarstöð án alls stress...
Síðsta prófið annars núna á eftir kl 14, er að reyna að panic læra ekki núna svona síðustu tímana fyrir prófið (Cryptographt), er samt smá stressaður, er helvíti erfiður áfangi en mjög skemmtilegur þannig að maður vill nú alveg helst standa sig vel í þessu blessaða prófi, allir að hugsa fallega til mín á milli 13-17 á íslenskum tíma í dag.
En spurning að fara að koma sér af stað til kíropraktorsins núna, láta hann taka bakið svona einu sinni enn í gegn fyrir jólin, henda svo í 2 þvottavélar og lesa í rólegheitunum í cirka 2klst fyrir prófið...
Eitt próf búið, eitt próf eftir og eftir tvo sólarhringa eru 50% líkur á því að á þessum tímapunkti stend ég einn á götum Stockholm að leita að áttinni að Arlanda flugvellinum, og afhverju 50% ? jú hin 50%:in eru líkurnar á því að á þessum tímapunkti mun ég ennþá vera sofandi heima í góða rúminu mínu og þurfi þarafleiðandi að halda jólin "hátíðleg" einn með kaffibolla og sænskum kjötbollum.
Búinn að ákveða að ef ég vakna í tíma að þá ætla ég að gera mitt fyrsta videoblog og skella inná áður en ég legg af stað með lestinni.
28 tímar í að ég geti hætt að læra undir próf og 33 tímar í að ég komist í jólafrí, djöfulli sem tíminn líður hægt í próflærdómnum.
Hvaða idiot ákvað að setja leik Chelsea-Liverpool í kvöld... oohh verður sumsé ekkert lært á milli 21-23 í kvöld, mínir menn mættu alveg vinna þennann leik, bara fyrir mig, ekki það að manni sé eitthvað mikið sama um þessa keppni (Carling Cup), en alltaf gamann að vinna Chelsea.
Bleeding Love með Leona Lewis er alveg að gera sig í spilaranum í dag.
Veit ekki alveg, en þessi dagur byrjaði ekkert gífurlega vel neitt, jú nema að ég var ferskur í morgun að læra, eeennn svo þarf náttúrlega alltaf eitthvað að koma uppá.
Byrjaði á því í morgun þegar ég var að taka mér til morgunmatinn í að reka mig í boxið sem ég geymi öll hafragrjónin mín í, fyllti á það í gær, þannig að það flaug að sjálfsögðu á gólfið, lokið skaust af og fékk því hafragrjón basicly útum allt. Var ekki að nenna að ryksuga það samt alveg strax upp þannig að ég sópaði þessu samann og skildi eftir þar sem ég var nú að fara að éta morgunmatinn minn. Síðann eins og gengur og gerist gleymdi ég þessu nottla á golfinu.
Þangað til í hádeginu, þá fékk ég þessa snilldarhugmynd að búa mér til grjónagraut, vatn í pott, soðið og grjónunum skellt í, lagði síðann grjónapokann í gluggakistuna hjá mér á meðann ég ætlaði að hræra í pottinum en greynilega ekki alveg nógu vel þar sem hann datt á hliðina og sturtaðist þessi góði slatti af hrísgrjónum niður á golfið og blandaðist bara fínt með hafragrjónunum sem voru þar fyrir.
Var alveg á því að hella bara heitu vatni og smá mjólk yfir þetta og éta bara í hádegismat!
Aðeins seinna um daginn ákvað ég svo að setjast inn í stofu og horfa á smá fótbolta í imbanum, ekkert mikið að segja um þann leik, en þá ákvað ljósaperan í stofunna að springa þannig að það er bara þessi kósý hálfdimm stemning hérna í stofunni, gjörsamlega ómögleg að læra við og hálfónýtt að reyna að halda sér vakandi líka þar sem ég náði að sofna í cirka klukkutíma og er bara ekki að ná að rífa mig upp af rassgatinu til að setjast inn í eldhús að læra.
Eftir 5 daga verð ég staddur á Íslandinu :)
Mér til alveg mikils ótta og skelfingar þá kláraðist kaffið hérna í morgun, það sem allir námsmenn óttast að geti komið fyrir í miðjum próflestrinum og ennþá 2tímar í að næsta búð oppni..... what to do... what to do ???

Skrifaði núna fyrir helgina
Voðalega var gamann að sjá áðann að það sé íslensk jólaútvarpsstöð á netinu, búinn að sitja núna í allann morgunn að hlusta á íslensk, já og nokkur erlend jólalög og leyta að jólafílingnum sem finnst einhverstaðar inní mér.
Og búinn að vera hlusta svoldið á þetta núna síðustu daga og... helvíti er líka til mikið af alveg skelfilegum jólalögum :)
Í sumum tilvikum virðist bara vera eins og fólk hafi fengið einhverja gífurlega þörf fyrir að skrifa eitthvað jólalag, ekki dottið neitt í hug og því hripað niður nokkrar línur af texta og troðið þar inn á milli orðunum "jól" og "gleði og hamingja", fundið einhverja smá tónlist undir og skellt þar inn einu eða tveimur klukknahljómum og tatamm, það er komið jólalag sem er spilað um hver einustu jól, en jújú svo getur verið að það sé eitthvað fólk sem finnist þetta voðalega fallegt og flott og þá leyfi ég þeim bara alveg að njóta þeirra og óska því fólki gleðilegra jóla.
En ætla nú ekkert að vera að tuða yfir Jólalögum hérna í allann dag heldur fagna þeirri mögnuðu ákvörðun minni að vera heima að læra í gærkvöldi í staðinn fyrir að fara í partý þar sem einhverntímann seint og síðarmeir í gærkvöldi náði ég að klára eitt skilaverkefnið í Cryptography og því bara eitt eftir þar (sem ég byrjaði á í morgun) og eitt í Programming Paradigms áfanganum, alveg magnað að sitja heima að læra bæði föstudags- og laugardagskvöld, eeekkki oft sem það hefur gerst áður.
En á sama tíma er ég ennþá að gráta yfir fyrsta tapinu í deildinni á leiktíðinni hjá Liverpool í gær á móti Reading, alveg mjög spes leikur þar sem boltinn virtist bara ekki vilja fara inn í markið auk þess sem Reading fengu víti sem ekki var víti og Liverpool fengu ekki 3 víti sem voru miklu meira víti heldur en það sem Reading fékk, gífurlegt svekkelsi þetta.
En svo aftur yfir í skemmtilegri mál að tók alveg mjög góða lyftingaræfingu í gær, alveg fínt að þessir þræðir sem hanga á löppunum séu að taka aðeins við sér auk þess sem ég tók fína æfingu í lauginni í morgun.
En málið að læra núna aðeins í nokkra tíma í viðbót áður en ég kíki niður í höll og þjálfa í smástund (miklu minna en planað var fyrir þessa helgi) og horfa svo á félaga minn deyja í 400m :)
Tonight is the night, en þá á ég einmitt pantaðann þvottatíma og svo framarlega sem ekkert kemur uppá að þá verð ég kominn í góð sokkamál í fyrramálið sem er alveg gífurlega gott bæði fyrir mig og aðra sem þurfa að umgangast mig :)
Hljóp á æfingunni í gær, 2x500m og 3x300m, eða sömu æfingu og síðustu viku og var bara alveg mjög svo sáttur, milljón sinnum betri en síðast, ekkert súpergott samt, en amk gamann að sjá að maður er að taka vel við sér og farinn að hreyfast amk eitthvað smá áfram, var nottla í algjörum bömmer eftir sömu æfingu í síðustu viku, þannig að bara jákvætt með þetta.
Bæði skilaverkefnin í þessari viku gengu bara fínt, náðum að klára fyrstu 2 spurningarnar í því sem við skiluðum í gær (60 af 100 stigum) og fengum næstum fullt fyrir það þannig að það hafðist á endasprettinum, núna bara 3 verkefni eftir á 7 dögum þannig að ég þarf eiginlega að sitja vel yfir þessu um helgina, sem kemur þá að næsta punkti.
Um helgina já... krakkarnir mínir eru að keppa og planið að vera þar og coacha, eins og lítur út núna að þá verður það í mesta lagi bara annann daginn + að einn æfingafélaginn minn ætlar að hlaupa 400m uppá djókið sem maður verður eiginlega að horfa á á sunnudaginn þar sem hann hefur gert það einu sinni áður og afrekaði þá hinar ótrúlegu 19sekúndur síðustu 100m (endaði á 55.5s), spurning að maður taki með popp, kók og vídjócameru svona ef hann ætlar að endurtaka leikinn aftur :)
Síðan er mér boðið í innflutningspartý annað kvöld, jújú ekkert að því, nema að gaurinn býr í bæ rétt fyrir utann Gautaborg og ég er bara alveg voðalega lítið að nenna að fara alla leiðinni þangað, nóg að gera í lærdómnum þannig að maður myndi ekkert stoppa neitt lengi þannig að þetta ferðalag + stutt stopp = er það þess virði ??
Jólagjöfin er ég og þú, það er sælla að gefa en þiggja, ef þú vilt mig, ég og þú...
Nei, var nú bara að komast að því núna að það er kominn desember... í rauninni mér til mikillar skelfingar þar sem að ég er EKKI búinn að kaupa mér jóladagatal í ár!
Fékk þetta ekki litla sjokk í gær þegar ég komst að þessu á leiðinni heim úr skólanum en mun vonandi ná að redda þessu í dag.
Átti annars ágætishelgi, sitjandi í skólanum að gera verkefni í Cryptography með Magnus, gekk bara alveg ljómandi vel, gerðum þennann drullufína kóða, allt lúkkaði rosalega vel, gerðum allt sem gera átti, nema það var bara eitt smá pínu vandamál.. forritið virkaði ekki, sama hve oft við fórum í gegnum kóðann og reyndum að finna þessa villu að þá var það bara alveg vonlaust og eftir allmarga klukkutíma ákváðum við bara að senda þetta inn svona eins og það var, fáum svo þetta til baka og vonandi þá með commentum um hvað það er sem er ekki að virka... vonum það amk !
John Hughes er maður sem ég bara fýla ekki, er kennarinn minn í hinum áfanganum, "Programming Paradigms" og hann er alveg að fara á kostum við að slátra okkur sem erum að lesa þennann áfanga, leggur skilaverkefnin seint út á heimasíðuna og eru þau alltaf rugl erfið í öðruveldi, en þetta fer að verða búið, prófin eftir 15 daga..
Síðan lendir maður á klakanum 21.desember og mun vera þar til 3.janúar, verður samt fróðlegt að sjá hvernig manni mun ganga að ná lestinni til Stokkhólm kl. 6 um morguninn..... engin gífurlega góð reynsla af alltof-snemma-á-ferðinni-lestum svona hingað til !

