Jahá
Sep 30, 2007, 22:17
Það er ekki það að ég nenni ekki að blogga, er bara búið að vera suddamikið að gera og því voðalega lítið sem manni dettur í hug að skrifa um, betra ekkert en eitthvað leiðinlegt ? En amk af góðu tíðindunum er það að frétta að æfingarnar byrja aftur á morgun og já, er að verða kominn langleiðina með nýja síðu, jibbýýý :)
Nýklipptur
Sep 26, 2007, 20:05
"Hey Ragnar, ertu búinn að klippa þig ?" Fyrstu viðbrögð fólks við breytingum er að halda að maður hafi klippt sig, þetta er mín kenning þannig að þú getur alveg hætt að vera glöð/glaður og ánægð/ur þegar einhver tekur eftir að þú hefur klippt þig, því að þetta er bara fyrsta sem fólk dettur í hug varðandi breytingu á útliti fólks. Og afhverju kem ég með þessa kenningu? Jú, málið er það að ég hef bara ekki verið síðhærðari síðan einhverntímann í kringum jól í fyrra (= ekki búinn að raka á mér hausinn síðann í lok ágúst). En málið var það að ég hafði líka voðalega lítið rakað mig síðann þá og kominn með mánaðarhökutopp (jájá hafið bara ykkar skoðanir um það) en ákvað svo í gærmorgunn að raka mig og það eru núna 3 manneskjur búnar að spurja mig hvort ég hafi farið í klippingu... Já, það eru spekingslegar pælingar í próflædrómnum :)
Ne le dis à personne
Sep 24, 2007, 10:33
Langt síðann síðast, en við ákváðum nokkur að kíkja í bíó í gær og eftir miklar pælingar enduðum við á Franskri mynd, Ne le dis à personne, sem ég verð að viðurkenna að ég hafði ekkert gífurlega miklar væntingar til. Þetta var hinsvegar bara alveg hin fínasta spennumynd og fínt í rauninni að breyta aðeins til úr þessum týpísku amerísku þvælumyndum sem maður horfir á alltof reglulega :) Já mæli bara alveg með þessari :)
Blog
Sep 21, 2007, 10:36
Hirru já, ég er víst með bloggsíðu, betra að skrifa kanski svona eitthvað smá hérna. Málið er bara að ég er kominn með algjörra leið á útlitinu á síðunni og fjarlægist hana því alltaf meir og meir, er svo að vinna í að endurforrita hana en tíminn sem ég hef bara núna er ekki uppá marga fiska, svona heldur mikið að gera í skólanum og þar verður maður því miður að hafa forgangsröðina á hreinu, en einn góðann veðurdag krakkarnir mínir fixa ég þetta. En komst sumsé heill til baka til Svíþjóðar á mánudaginn og fagnaði því ákvaflega að hafa komið aftur til baka, enda cirka 15°hlýrra hérna núna en var á íslandinu um helgina. Í kvöld er það svo bara parteeeiii, erum æfingahópurinn að fara að hittast, borða og djamma samann í kvöld, heyrist að mætingin eigi að vera góð þannig að þetta ætti bara að verða hin fínasta stemning. En vonsvikni vikunnar var samt Porto - Liverpool leikurinn á þriðjudaginn, verð að viðurkenna að ég hef aldrei séð Liverpool jafn ógeðslega lélega og í þessum blessaða leik, veit ekki alveg hvað hefur verið í gangi og var ég bara mjög svo sáttur með að þeir náðu jafntefli úr þessum blessaða leik, svona miðað við hvað þeir voru ógeðslega lélegir... og það er ekki oft sem ég tala illa um Liverpool.
þetta eru almennilegar móttökur
Sep 14, 2007, 11:52
Já lenti á landinu í gærkvöldi og verð að viðurkenna að það er alltaf jafn gamann þegar Ísland tekur á móti manni með bros á vör og sól og sumaryl..... en þannig var það því miður ekki í gær. Alveg hið sæmilegasta rok fyrir sunnan en lægði eitthvað á leiðinni norður, en í staðinn fékk ég að sjá snjó í fyrsta skiptið í haust bara rétt fyrir utann krókinn, come on... það er bara 15.september:
ER EKKI VERIÐ AÐ GRÍNAST !
Sep 12, 2007, 17:11
Djöfulsins andskotans helvítis djöfulsins rugl er þetta. Fékk að vita núna í dag að B-lið Breiðabliks og B-lið ÍR hafi dregið sig úr keppninni í annarri deildinni sem fer fram núna um helgina. Upphaflega átti keppnin að vera um sömu helgi og keppnin í fyrstudeildinni í ágústmánuði en vegna þessa að þessi lið vildu fá að senda b-liðin í keppnina að þá var 2.deildar keppnin færð á þessa gífurlega heimsku dagsetningu í miðjum fucking september, þegar flestallir ef ekki allir eru í miðju hvíldartímabili og skólinn kominn á fullt hjá fólki. En núna þegar þessi höfuðborgarfélög eru búin að draga sig úr keppni með svona gífurlega miklum fyrirvara standa bara 2 lið eftir, þau sem upphaflega áttu að vera með, UMSS og UFA/UMSE þannig að það hefði alveg verið hægt að hafa mótið um sömu helgi og 1.deildarbikarinn. Djöfulsins vanvirðing hjá þessum félögum, ÍR og Breiðarblik í garð þessara liða sem eftir eru að þetta er bara langt frá því að vera fyndið og ef ég hefði ekki bara verið að frétta þetta núna og á pantað flug heim til Íslands í fyrramálið að þá myndi ég algjörlega hunsa þetta helvítis mót enda djöfulsin rugl frá A-Ö.
Ha.. það er ennþá september !!
Sep 11, 2007, 23:11
Er ekkert verið að grínast í mér, ætlar Ísland að taka á móti mér með 4 skitnum gráðum um helgina ??? Þá sleppi ég því bara hreinlega að tala um hve gott veðrið var hérna í Gautaborginni í dag ...
The end of the world
Sep 10, 2007, 23:18
http://www.endofworld.net/ Fann þetta flash myndband aftur áðann, finnst það alltaf jafn mikil snilld, líka skemmtilegt hvernig ég fann það, eina sem ég mundi úr því var: "And Australia just like WTF" þannig að ég skellti því bara inn í google og tatamm, 5sekúndum síðar var ég byrjaður að horfa á þetta. Asafa powell með nýtt heimsmet, 9.74 og hljóp andskotinn hafi það ekki alla leið inn... fucket up shitt sko. Var annars með góða gesti um helgina, Arnar Már, Silla og Ari kíktu í heimsókn og var bara alveg mjög gamann að hafa þau hérna, reyndar aldrei verið gert jafn mikið grín af íslenskunni minni eins og um helgina en maður lét sig nú hafa það, beinþýdd sænska á íslensku svínvirkar nefnilega alveg. Kíktum á Finnkampen sem var líka bara helvíti gamann sem og að kíkja með þeim í smá búðir, gekk jafn illa fyrir Ara að finna jakka sem passaði á hann og það gekk vel fyrir mig að finna fuuulllt af kúl stöffi sem mig langar GEÐVEIKT mikið í .... ég hata þetta fátækra námsmanna kjaftæði ! Nóg að gera í skólanum, var kominn heim rétt rúmlega átta í kvöld eftir að hafa verið þar síðann átta í morgun, sé alveg framá að þetta verði bara eitthvað álíka næstu vikurnar. Scrubs er bara æði
Parteiii
Sep 06, 2007, 21:10
Ætlaði að eyða kvöldinu í lærdóm og meiri lærdóm en vegna gífurlegrar stemningar í partýinu hérna fyrir ofann mig læt ég sófann og sjónvarpið duga í bili. Ég er annars voðalega afslappaður maður, man varla eftir því hvenær ég varð stressaður síðast, nei bara hreinlega á erfitt með að muna eftir því ... þangað til í gær þegar það kom bara panic á strákinn þegar ég sat í fyrirlestri í skólanum í gær. Er sumsé að lesa einum kúrsi meira núna en ég ætti að vera að gera og eftir að hafa farið í fyrirlestur í öllum kúrsunum og kominn með smá yfirlit hvernig önnin á eftir að vera að þá kom bara þetta þvílíka stress og áhyggjur yfir strákinn, verkefni, skilaverkefni, stór verkefni + að ég á ekki eftir að geta farið í marga fyrirlestra í stærðfræðinni vegna því 2 áfangar klessa svoldið mikið á hvorn annann, ég á basicly ekki eftir að eiga mikið líf næsta einn og hálfann mánuðinn :( En annars bara allt gott að frétta :)
back to school
Sep 04, 2007, 18:57
Úff þá er harkan byrjuð aftur, skólinn kominn af stað og sýnist mér að það verði alveg nóg og yfirdregið meira en það að gera næsta einn og hálfann mánuðinn, en verð að lesa 3 kúrsa núna í staðinn fyrir þessa hefðbundnu 2 (helvítis stærðfræðin) þannig að mér sýnist að maður muni ekki eiga sér neitt gífurlega mikið líf á næstunni. Er amk orðinn frískur og verð því eitthvað aðeins að hreyfa á mér rassgatið næstu einu og hálfu vikuna þannig að maður geti eitthvað á annarradeildarbikarnum þann 15.sept, mun amk hita upp fyrir það með að horfa á finnkampen sem er núna um helgina með Ara, Arnari Má og Sillu, held að það verði bara stemmari :)
Fegurðardrottning
Sep 01, 2007, 10:35
Það vantar virkilega fleira svona fólk í heiminn sem fær okkur hin að finnast við sjálf vera gáfuð :)

local