Á klakanum
Apr 30, 2007, 01:43
Held að það sé bara algjörlega ómöglegt að hafa gamann af því að ferðast einn, þá sérstaklega þegar ferðalagið byrjar kl. 03:00 á íslenskum tíma og endar rúmlega kl 19:00. Verð á landinu til fimmtudagsins en er ekki með íslenska símanúmerið mitt með mér, þannig að ef einhver þarf að ná á mér að þá er það bara sænska númerið +46 768 906930 Þessar æfingabúðir voru samt bara snilld, bæði hrikalega gamann sem og æfingarnar gengu bara ótrúlega vel, hálf svekkjandi að geta ekki verið allann tímann og náð nokkrum góðum þar í viðbót. Hljóp á fimmtudaginn 1x450m og svo 3x200m (15mín hvíld eftir 450m og 3mín á milli 200m) splittaði á 50.30 í gegnum 400m í 450m frekar auðveldlega á þægilegu rúlli og hljóp svo 200m á 23.7 - 23.9 - 24.5 Endaði æfingabúðirnar svo á 300m testi á laugardeginum, hafði bara hlaupið 300m áður á 35.0 innanhús og því málið að bæta það. Var reyndar sæmilegur mótvindur fyrstu 100m og hljóp það því miður tæknilega séð ömurlega, alltof stífur, en kom samt í mark á 34.5s sem ég var bara ágætlega sáttur við miðað við allt og held að það segi margt um hve vel ég hljóp þetta að ég hafði meiri mjólkursýru í höndunum en í fótunum!!
Spanien
Apr 25, 2007, 17:00
Jaha, laaangt sidann madur bloggadi sidast!! En tad var bara hreinlega alveg brjalad ad gera hja manni adur en eg for ut til Spanar i aefingabudir fimmtudaginn sidasta og ekkert verid a netinu sidan eg kom hingad tannig ad... ja, en amk, eg er a lifi :) Hofum tetta samt bara stutt og laggott, aefingarnar ganga bara alveg mjog vel, komnar 2 mjog godar hlaupaaefingar i pottinn hja manni, ein i vidbot a morgun og svo 300m test a laugardaginn sem tvi midur verdur min sidasta aefing i tessum aefingabudum tar sem ad hann Afi minn lest nu a fostudaginn sidasta tannig ad eg flyg nuna heim til Islands a sunnudaginn til ad vera vidstaddur jardaforina hans og verd a Islandi fram til fimmtudagsins tar sem eg flyg aftur til Svitjodar, alveg skemmtilega morg flug a of stuttum tima... En vedrid herna annars bara mjog fint, vist buid ad vera skitavedur tangad til ad vid komum, reyndar bara verid sol i 3 daga en vel hlytt og gott bara tannig ad madur getur amk hlaupid eins og vitleysingur :) Ja, og svo vard sma breyting a straknum herna tar sem eg fekk sma flugu i hausinn a manudaginn ad taka saenska stilinn a tetta allt samann og vaxa a mer bringuna til ad sanna ad tetta vaeri alls ekkert vont neitt, TEK TAD ALLT SAMANN TIL BAKA! hef heitid tvi ad verda sa madur sem finnur uppa sarsaukalausu harplokkingaradferdinni, lofa tvi hermed eftir.... en tetta er nu samt bara alveg helviti soft herna nuna :) En ... timinn buinn... sjaumst fljotlega elskurnar minar...!!
Að hafa eitthvað að skrifa um
Apr 15, 2007, 16:49
Alveg merkilegt alveg þegar maður er veikur, maður er heima, basicly ekki að gera neitt, hefur allann tíma í heimi til að blogga, að þá hefur maður basicly bara ekki neitt til að blogga um, enda gerir maður lítið annað nema að vorkenna sjálfum sér (sem er ekki alveg það skemmtilegasta í heimi að lesa um) og ná sér í einhverjar misgóðar bíómyndir til að glápa á, þannig að mín veikindavika: 300 Bara mjög gamann að henni, sennilega draumamynd allra kvennmanna, 300 velmassaðir gaurar á brókinni með skikkju um hálsinn að pósa. Bara gamann af henni, mikið af töff actioni og ... já, actioni The Departed Jú, bara helvíti fín Blood Diamonds Önnur myndin í röð með DiCaprio, bara alveg að fíla gaurinn í botn í þessum tveim myndum, mæli vel með þessari. Eftir prófið á fimmtudaginn, illa sofinn og í vondu skapi: Happy Feet Elska bara svona fullorðins "teiknimyndir"... ekki svona fullorðins fullorðins heldur bara svona teiknimyndir sem við gamla fólkið getum líka haft gamann af. Hrikalega gamann af litlu Mexíkana mörgæsunum, en fannst endirinn fucka myndinni aðeins upp. Wild Hogs Fimmtugir kallar með gráa fiðringinn á móturhjóla-road-trippi í USA, mikið um aulahúmor sem ég hafði bara gamann af, fínasta mynd bara ef maður ef maður er ekki með of miklar væntingar ;) Hot Fuzz Vissi ekkert um hvað hún var þegar ég byrjaði að horfa á hana, fínasta breska rugl með fínasta Ameríkönskum bíómyndaAction endi, ég hló amk bara sæmilega mikið. En þessi mynd er sumsé með sömu 2 aðalleikurum og í Shaun of the Dead sem ég hafði reyndar ekki séð þannig að ég náði mér bara líka í hana í gær og glápti á, meira djöfulsins ruglið sem ég hafði bara helvíti gamann af :) Epic Movie Bjóst við góðri aulamynd sem gæti fengið mann til að hlægja smá... EEENNN... EKKI TAKA ÞESSA MYND OG ALLS EKKI FARA Á Í BÍÓI, mesta sóun á mínum tíma í langann tíma, hefði frekar getað setið inní eldhúsi, drukkið kaffi og borað í nefi og fundist ég hafa náð lengra í lífinu með því. Held ég hafi brosað svona einu sinni, hló aldrei... gífurleg vonbrigði!! Þökkum svo YouTube fyrir að vera til og Dane Cook og Pablo Francisco fyrir að vera svona fyndinr, held ég sé búinn að glápa á allar klippur með þeim sem finnast á þeirri ágætu síðu :) Næstu myndir sem er svo planað að sjá eru Reign Over Me með Adam Sandler og Sunshine, enn ein heimsendamynd, miklar kröfur fyrir hana þar sem hún verður að toppa I don´t wanna close my eyes með Aerosmith úr Armageddon, sem verður ekkert létt verk! Tók annars létta æfingu í gær þannig að maður er nú á leiðinni í gang aftur, reyna að taka spretti á morgun og svo bara Spánn á fimmtudaginn, yeah babe yeah :D
Að skána
Apr 11, 2007, 13:07
Úff hvað þetta eru búnir að vera leiðinlegir síðustu 2 dagar, maður er búinn að geta lært svona 40% af því sem maður vildi vera búinn með en þessi djöfulsns veikindi eru bara búin að hægja þetta svo helvíti mikið... En amk hressari í dag, hóstasaftið, nefspreyið, engiferrótin, te-ið og hunangið greinilega að gera sitt þannig að maður ætti að geta keyrt aðeins á þetta í dag og flengt þetta blessaða próf á morgun. Afrekaði á mánudagskvöldið að bara geta ómögulega sofnað, hóstaði svo mikið, gat ekki andað með nefinu og alltaf svo heitt og kalt til skiptis að það tók cirka 5 tíma að sofna og sofnaði ég þar af leiðandi einhverntímann í kringum 04:30-05:00, gífurleg stemning í því. Er alveg að verða brjálaður af þessu innistandi og hreyfingarleysi, taka smá göngutúr á eftir í góða veðrinu en það á svo bara að fara uppí 20°C hérna um helgina þannig að alveg spurning að nýta það aðeins og fá smá lit á hvítu húðina fyrir spánarferðina! Veit ekki alveg hvað ég horfði á í gær, en amk endaði sá leikur 7-1, hélt ég væri að horfa á fótboltaleik en hann endaði bara með þessum mögnuðu íshokkítölum, já Man Utd fær nú smá credit fyrir þennann leik, voru jafn góðir og vörnin hjá Róma var léleg, en mörg flott mörk samt, verða samt slegnir út af AC Milan sem vinnur Bayern í kvöld og svo verður Milan slegið út aftur af Liverpool sem rúllar yfir PSV í kvöld og svo Chealsea í semi og tökum við aftur Championship League dolluna með álíka miklum dramaleik og síðasta á móti Milan
Að læra veikur, pfiff...
Apr 09, 2007, 19:23
Það er basicly ekkert skemmtilegast í heimi að sitja heima í próflærdómi, og þá alveg langt frá því skemmtilegra að gera það veikur, en ákvað að testa það svona í dag þar sem ég hef aldrei verið áður veikur svona yfir prófin áður svo ég muni, meira bara verið í letinni í staðinn. Hafði verið eitthvað hálf slappur á laugardaginn, í tipp topp í gær og vaknaði svo bara eins og aumingi í morgun, hósti, vel stíflað nef, höfuðverkur og bara þessi almenna vanlíðan en ákvað samt að prufa að fara á æfingu, enda oft sem maður batnar bara þegar líða fer á daginn. En því miður var það ekki alveg svo gott í dag og eftir 3 upphitunarhringi í höllinni ákvað ég bara að drulla mér heim þar sem mig var bara farið að svima aðeins og hættur að geta elt þessar hvítu línur á rauða tartaninu. Þannig að heima með massa af blöðum fyrir framann sig, kaffi í hægri og Te með hunangi í vinstri. Fór því að pæla eins og alltaf áður afhverju maður byrjaði nú ekki að læra fyrir þessi blessuðu próf fyrr svo maður ætti nú ekki svona mikið eftir síðustu dagana. En maður getur sumsé lært fyrir próf á tvo ólíka vegu: Rétta leiðin Setjast niður tímanlega og lesa í rólegheitunum yfir allt efnið, skemmir alls ekki fyrir að hafa verið samviskusamur líka yfir alla önnina Mín leið - Af einhverri frábærri ástæðu finnur maður sér alltaf eitthvað tímafrekt að gera í vikunni fyrir prófin, núna var það að byrja að hanna nýja heimasíðu frá grunni sem verður nokkurra vikna verk - Nottla algjör óþarfi að byrja of snemma að læra fyrir prófin og einhverstaðar í undirmeðvitundinni reiknar maður út hvað mörg próf maður fer í og hve marga daga MAX maður þarf að læra fyrir hvert próf, allir dagar fyrir utann þennann MAX hring eru að sjálfsögðu heilagir frídagar til að slappa af og gera örugglega ekki neitt gáfulegt. - Þegar maður ákveður svo að byrja að læra, sem er yfirleitt á síðasta mögulega deginum til að geta byrjað að læra fyrir prófið til að ná því örugglega, að þá virðist alltaf vera algjört mösst að taka íbúðina alveg í gegn, þrífa hana á þeim stöðum sem hafa aldrei verið þrifið á áður og láta hana glansa sem aldrei fyrr, sem er sennilega það mest óþarfa í öllum heiminum þar sem það er algild regla að maður gengur um íbúðin eins og versta svín yfir prófin og þarf hvort eð er að laga aftur til strax eftir þau! - Allir mögulegir sjónvarpsþættir verða gífurlega áhugaverðir og algjört mösst að sjá, sama hve leiðinlegir þeir hafa verið áður... - Maður finnur alltaf fyrir gífurlegri þörf til að sjá einhverjar bíómyndir sem maður hefur aldrei haft tíma til að sjá áður og tatamm, þær finnast alltaf á góðum stöðum á netinu. - Algjört mösst að ná sér í góða próflærdómstónlist og alltaf tekur jafn langann tíma að finna hana, sortera hana og setja á réttann stað í tölvunni og þar sem maður er nú að því að afhverju þá ekki líka bara að fara í gegnum restina af lögunum í tölvunni og láta þau örugglega heita réttum nöfnum og vera rétt skipurlögð. - Alveg ótrúleg þörf til að skrifa löng blogg... En jæja, komið nóg af rugli í bili, hálf hættur að sjá á skjáinn hérna og málið að ná sér í bíómynd kvöldsins :)
Páskarnir
Apr 08, 2007, 17:58
ooohhh mér er bumbult... hvaða fífl fann uppá páskaeggjum.... og afhverju er svona erfitt að hætta að éta það þegar maður byrjar, helvítis góða íslenska nammi!! Málshátturinn úr egginu:
"Sagt er að augað sé spegill sálarinnar - Skaði að það skuli vera til spéspeglar"
WHUUUUTTT!!!
Glad påsk allihopa
Apr 08, 2007, 10:34
þolinmæði
Apr 07, 2007, 15:10
Djöfulli sem mér leið eitthvað undarlega í morgun, svona "byrjunin-á-því-að-verða-veikur" fílingur sem var alveg frábært fyrir útibrekkusprettina í kuldanum í morgun (ekki neima einhverjar 6-7°C úti núna) og svo 350-300-250m inni eftir það með 5mín hvíldum, gaf reyndar þessum slappleika langafingurinn og gekk reyndar bara alveg ótrúlega vel í brekkunni og sæmilega alveg í hlaupunum eftir það, jey :) Líka alveg xtra gamann að síðustu vikurnar hefur vanlíðan og ógleðin verið í algjörum minnihluta á þessum æfingum, bara gífurlegt magn af sýru komið í staðinn sem ég velkomna bara með bros á vör, enda mun skemmtilegra að hafa sýru sem fer eftir tæpar 10mín heldur en þessa helvítis ógleði sem getur alveg dundað sér í maganum í góðar 45mín. Lítið blogg á síðustu dögum hefur að sjálfsögðu sýnar skýringar líka, er að fara í eitt stk próf núna í næstu viku og hef svo líka verið að vinna í nýju lúkki, já eða ekki bara lúkki, bara í nýrri síðu frá algjörum grunni, en ætla að skipta út öllu þessu sem ég hef núna og gera allt bara nýtt, líka margt og of mikið sem mig langar að prufa að hafa og gá hreinlega hvort ég geti gert og tekur það basicly mestann minn frítíma núorðið, enda það eina sem ég hef gífurlega mikla þolinmæði er að sitja og fá einhvern heimskulegann forritunarkóða að virka...
jebbz jebbz
Apr 04, 2007, 17:40
Slök helgi bara
Apr 01, 2007, 23:38
Já, þegar maður hefur ekki frá miklu að segja að þá er ekki mikið skrifað hérna, set þetta sem tilvitnun mánaðarins... Já það er bara líka fyrsti apríl í dag, eða amk 20mínútur eftir af honum, en nenni ekki að ljúga neitt í dag, enda lýg ég heldur aldrei :) En þessi 3ja daga æfingahvíld var bara tekin með trompi, út að éta og vídjógláp með Bjössa Margeirs á föstudaginn, póker og kíkt niður í bæ með nokkrum bekkjarfélögum mínum í gær og svo setið á kaffihúsi í dag með Dennis æfingafélaga og chillað, svona frekar mikið næs. En reyndar ekki alveg að fatta þetta desperat leit að tanninu hjá fólki hérna, en hitinn rétt skriðinn í 15° og fólk nú þegar farið að liggja útí sólbaði og sleikja hvern einasta sólargeisla sem kemur niður á jörðina... desperat lið, bara að fara til Spánar og þá þarf maður ekkert að láta sig frjósa hérna í 15°;) DJÖFULLI ER EITTHVAÐ ÍSKUR HÉRNA AÐ GERA MIG BRJÁLAÐANN!! - 3 mín pása - ok... klósettið er að ýlfra... jey...!!! Skít í það á eftir og þá verður það svo svekkt út í mig að það þegir restina af árinu!!

local