Skellti mér í golf í gær í fyrsta skiptið í djöfulli langann tíma þegar Arnar bróðir reif mig með sér til að reyna niðurlægja mig svona aðeins í blíðunni heima á krók.
Spiluðum með gömlu golfkylfunum sem ég átti þegar ég var 13-14ára þannig að þær voru jú alveg heldur litlar og kenni ég þeim að sjálfsögðu um hvað ég var ógeðslega lélegur, drive-in voru voðalega blönduð, höggin á brautinni slök, skelfilegur að chippa, en púttaði hinsvegar eins og Tiger Woods.
Niðurstaðan var 4.5vinningur hvor eftir að Arnar hafi komist í 4-1 í holukeppninni en með glæsilegum endaspretti þar sem ég vann síðustu 3 náði ég jafntefli.
En í dag, suður á bikarinn og gera mér vonir að geta keppt... amk eitthvað.. ?
Allir sem hafa internetið og eru eitthvað sæmilega virkir á youtube hafa mjög líklega séð myndböndin við lagið Stronger með Daf Punk:
Hendurnar
Stelpurnar:
Og þar sem stelpurnar voru búnar að gera þetta... þá verða að sjálfsögðu köttaðir strákar með sólgleraugu að gera þetta líka:
EN þá er náttúrlega bara eftir myndbandið sem er lang best af þessum öllum og tekur í rauninni það besta frá öllum hinum og skellir því í eitt best-of myndband:
Verð að sjálfsögðu að biðja Arndísi afsökunar fyrir bloggleysið undanfarið þannig að hún hefur þurft að "vinna vinnuna" sína á vinnutímanum...
En lenti annars á landinu í gærkvöldi og kom á krókinn núna í morgun, ætla að dútla mér hérna svona fram á fimmtudag og vonast til að geta verið með á bikarnum á föstudaginn.
Held að virknin hérna á síðunni endurspegli samt vel skapið á mér síðustu vikurnar útaf þessu kramparugli. Kálfinn var í ruglinu í síðustu viku og gat því hvorki hlaupið né keppt en held ennþá í vonina að þetta sleppi almennilega fyrir helgina þar sem ég gat hlaupið smá í dag áður en þetta stífnaði allt upp aftur.
Nenni samt ekki að röfla of mikið um þetta, þetta lagast þegar það lagast, en fór til læknis á föstudaginn sem tók blóð- og þvagpróf til að reyna að finna út hvort það vanti basicly eitthvað í mig, sem ég vona í rauninni að sé málið þannig að maður viti amk hvað er að og hvað sé hægt að gera...
En reyni að rífa upp virknina aftur á síðunni hérna og fara að tala um eitthvað annað en allt það sem er að mér :)
Ef þetta hefur einhverntímann verið fyndið að þá er það náttúrlega löngu hætt að vera það núna. En hljóp sumsé 300m um helgina svona til að testa hvort að hamurinn væri í lagi og jújú hann var fínn en stífnaði eitthvað aðeins í öðrum kálfanum í staðinn og á mánudaginn fór hann í rugl þegar ég ætlaði að hoppa aðeins yfir grindur og niðurstaðan er að ég er með krampa í kálfanum núna !!
Hægri hamur - vinstri hamur - vinstri kálfi... hvað er þá næst ?
Þannig að ég missti af drullugóðu 400m hlaupi í gær á FGP mótinu hérna í Gautaborginni en ætti að vera orðinn góður um helgina eftir meðferð alla vikuna, en held bara að næst á dagskrá hjá mér verði að fara í blóðprufu og láta rannsaka það og tékka hvað það er sem vantar í mig þar sem að þetta er orðið alltof langt frá því að vera eðlilegt... !
En já, fyrir þá sem ekki vita að þá fer ég heim til Íslands núna á mánudaginn og verð þar í viku, kíkja aðeins heim á krók, keppa á bikarnum (vonandi) og einhver meiri stemning.
"Ég er 90% viss um að þú ættir að geta hlaupið á fullu um helgina"
Þannig hljómaði Napropatinn minn eftir meðferðina á þriðjudaginn og kallinn hefði bara ekki getað haft mikið meira rétt fyrir sér þar sem að ég gat neglt almennilega á einn 300m sprett í gær, gífurlega gott það þannig að ég ætla að keppa núna á þriðjudaginn í 400m hérna í Gautaborginni.
En vona að landsliðið sem er statt í Eistlandi á Evrópubikarnum í 2.deild hafi það eitthvað betur heldur en Svíjarnir í Tyrklandi í fyrstu deildinni þar sem allir eru víst brjálaðir út í skipurleggjendurna basicly útaf öllu, allt er víst í rugli og skipulagsleysið er víst alveg í hámarki, gífurleg stemning það sumsé...
Svíjarnir dottnir út úr EM, spiluðu gífurlega leiðinlegann fótbolta og áttu bara því miður ekki skilið að komast áfram, ég spáði Holland sigri í keppninni en þeir voru flengdir all illilega af Rússunum í gær þannig að mér er basicly núna nokkuð sama hverjir vinna þessa blessuðu keppni...

