jæja já, Ragnar Frosti Frostason heiti ég sumsé, módel 1982, fæddur og uppalinn á Sauðárkrók og bjó þar fyrstu 22 ár ævinnar eða þangað til ég ákvað að breyta aðeins til og flytja til Gautaborgar í Svíþjóð þar sem ég bý ennþá.

Dunda mér hérna við Nám í Tölvunarverkfræði við Chalmers tekniska höskola og stefni að því að ná mér í Civilingenjör í því að vera tölvunerd, mikil gleði og hamingja það.

Er á fullu í frjálsum íþróttum og æfi með Ullevi hér í bæ, hef lagt stund á þessa fínu íþrótt frá cirka 17 ára aldri eða frá því að ég hætti í fótbolta og líkar bara alveg mjög vel þrátt fyrir mjög misjafnt gengi og heldur ófáar drykkjulangastundir hjá sjúkraþjálfara og öðrum sérfræðingum en einhver djöfulsins þrjóska fær mann til að halda áfram, því fleiri hólar og hæðir því styttra í beinu sléttu brautina hefur fólk átt til að segja og reyni ég að trúa því :)

Faðir minn er Skagfirskur sveitalubbi frá Frostastöðum og heitir hann Frosti Frostason og hún móðir mín er Akureyrarmær og þessi magnaða blanda virkaði svona vel að hér er ég staddur, svona gamann að geta þess að ég á afmæli 21.ágúst, aldrei verra að fleiri viti af því þar sem fólk er alltof duglegt að gleyma afmælisdögum...

Ég á þrjú systkyn (eftir 5mín pælingar ákvað ég að systkyn væri skrifað svona) Fanney Björk eldri-litla systir mín er ári eldri en ég en höfðinu minni, Arnar Freyr er svo litli bróðir minn bæði í aldri (6árum yngri) og stærð (1cm síðast) og Hulda María er svo yngst eða 7 árum yngri en ég.

Pfff... dettur ekkert meira í hug að skrifa þar sem ég er nýkominn heim af æfingu og frekar þreyttur og.... já... gott mál það



Nafn:
Ragnar Frosti Frostason

Árgangur:
1982

local