Virðist sem að hægri hamurinn á mér og maí mánuður eigi eitthvað voðalega erfitt með að vinna samann en í fyrra fékk ég einhvern krampa/létta tognun og eftir æfinguna í gær er sami hamurinn eitthvað vel tæpur þannig að ég efa ég hlaupi eitthvað meira þessa vikuna :(
En hljóp annars ágætlega á laugardaginn síðasta, 1x450m og 1x200m og eru þessir lengri sprettir svona aðeins að koma til núna, 450m á 56.2 (22.7 - 35.2 - 49.1 ) og svo 200m á 22.0 þannig að þetta er jú allt að koma til, bara hlaupa betur á milli 200m og 300m og þá er þetta í góðu standi.
í gær voru áttu það svo að vera 5x150m, hljóp bara 3stk þar sem ég fann smá fyrir hamnum eftir þann þriðja. hljóp þetta allt í fínum meðvindi þannig að tímarnir voru jú eftir því, 15.7 - 16.0 - 15.7 eða smá svona overspeed þannig að kenni að sjálfsögðu meðvindinum um þetta allt samann....
En annars bara allt gott að frétta, sit núna og hlusta á nokkra leiðinlega fyrirlestra í skólanum, verð kominn í sumarfrí eftir akkúrrat 2 vikur, fyrsta mót eftir 15 daga, það er farið að kólna smá úti núna (hitinn farinn undir 20°C) og já.... later folks
Finnst textinn með þessari mynd bara vera snilld!

Alltaf voðalega þægilegt að þegar maður hefur ekki neitt að skrifa um að þá getur maður alltaf farið inn á íþróttasíðuna á mbl.is og fundið einhver góðgæti þar sem það virðist aldrei nokkur maður lesa yfir neinar greinar áður en þær eru sendar inn þannig að það er alltaf allt morandi í villum og röngum upplýsingum, veit ekki alveg hve gott það er í stærsta veffjölmiðli (?) á Íslandi...
en amk, djók dagsins er frá þessari grein :
Atletico Madrid færðist skrefi nær Meistaradeildinni þegar liðið lagði Espanyol, 2:0 á útivelli í spænsku 1. deildinni í knattspyrnu í kvöld [...] Aguero og Forlan hafa skorað samtals 44 mörk fyrir Atletico Madrid á leiktíðinni, Agurero 19 og Forlan 15, og þeir hafa átt stóran þátt í að liðið er með Meistaradeildarsætið innan seilingar.
Og þá er það stóra spurningin... hvað er 19+15 = ? (vísbending, það er amk ekki 44)
Djöfulli sem ég er alveg að elska þetta veður sem er búið að vera hérna og á að vera áfram amk næstu dagana, bara eini ókosturinn er hvað það er búið að vera mikið að gera í skólanum þannig að maður hefur setið alltof mikið inni og lítið fengið að njóta blíðunnar. Fékk reyndar fína 4klst í gær þegar ég var að vinna í Vårruset sem er svona konuhlaup hérna í bænum, 19.000 konur að hlaupa/skokka/labba og ég staddur á bílastæðinu að stjórna umferðinni þar og svo útskýra fyrir síðustu 100 bílstjórunum að það væri fullt þannig að þeir hefðu beðið í röðinni til að komast inn á bílastæðið til einskis... gífurleg stemning það :) En reyna að negla á almennilega æfingu í dag, 3x350m frá blokk á keppnishraða, dúndurgott veður, sól, 20°C og logn þannig að málið að gera þetta almennilega í dag!
úff, loksins getur maður slappað aðeins af núna eftir alveg dúndurlærdómsviku.
Sat basicly frá miðvikudegi og til og með meirihluta sunnudagsins með þetta blessaða verkefni í einum áfanganum sem við erum basicly búnir með nægilega mikið til að geta skilað því inn, en bara þessi helvítis fullkomnunarárátta í mér sem fær mig til að sitja aukalega með núna til að fixa smá hér og laga smá þar.
Sat svo á sunnudeginum og mánudeginum með 3 artiklar(greinar ?) sem við áttum að lesa, skrifa ritgerð um og undirbúa fyrirlestur sem við héldum svo núna í morgun, alveg ofboðslega leiðinlegt og óáhugavert og þessvegna fínt að klára það af núna!
Þannig að núna getur maður einbeitt sér að hópverkefninu í hinum áfanganum... bara 3 vikur eftir og svo sumarfrí :)
En æfingarnar já, þær hafa bara gengið mjög vel, amk þessir aðeins styttri sprettir, var róleg síðasta vika en hljóp ágætis æfingu á fimmtudeginum, 1x450m og svo 4x200m með 3mín hvíld
450m: 59.5 (51.9 í gegnum 400m), æi.. já ekkert meira um það
4x200m: (24.4 - 23.8 - 23.4 - 24.7) bara mjög sáttur með þetta, aðeins of hægur fyrsti spretturinn en mjög ánægður með hina, 3ja mínútna hvíld og suddamjólkursýra í og eftir síðasta.
En núna eru æfingarnar komnar á fullt aftur og núna fara þær að nálgast meiri keppnishraða, farið að styttast í mót og því kominn tími til að slípa þetta til aðeins :)

